Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Page 33

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Page 33
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006 um goldið þessa og gæði vinnsl- unnar hafa þar að auki ekki alltaf verið upp á það besta. En þetta var tíðarandinn, magnið skipti mestu máli, gæðin voru afgangs- stærð. Það var því mesta furða hvað manni tókst að mata roð- flettivélina vikum saman í 12 til 20 tíma á sólarhring án þess að slasa sig. Það kom líka fyrir að roðið festist í vélinni og hún hætti að vinna fyrir þær sakir. Þá kom Siggi Tomm - Siggi í Framtíð - með skrúfjárn sín og skiptilykla og pípuna í munninum og lag- færði vandann öruggum höndum, fáorður en verklaginn maður, sem starfaði sem vélstjóri við frystivél- arnar og lengi síðan. A móti hon- um stóð vaktina við vélarnar mað- ur sem mig minnir að hafi heitið Ingimundur, gæti hafa verið frá Akranesi, en þó þori ég ekki að fullyrða um það. Svo var hann El- inbergur Sveinsson þarna líka, kominn í land af sjónum. Við El- inbergur erum nokkuð skyldir, báðir komnir út af prófastinum á Staðastað, sr. Þorkeli Eyjólfssyni og konu hans Ragnheiði Pálsdótt- ur frá Elörgslandi á Síðu. Svo voru þau Gestheiður kona hans og pabbi náttúrulega bræðrabörn. Aðal verkstjóri var þarna Jóhannes nokkur Bergsveinsson, upprunn- inn á Hólmavík á Ströndum, en hafði farið nokkuð víða á vegum Sjávarafurðadeildar Sambandsins við að skipuleggja og koma á lagg- irnar fiskvinnslu á vegum kaupfé- laga og fyrirtækja þeim tengdum. Jóhannes þótti nokkuð strangur verkstjóri, en kunni áreiðanlega sitt fag. Hann var þó ekki lengi þarna, enda hefur það líklega ekki staðið til annað en hann yrði þarna fyrst og fremst við að koma vinnslunni á lagg- irnar. Forfrömun í starfi. Eftir páska forframaðist sögumaður á þann hátt, að ég fékk að hætta á roðfletti- vélinni og fór að vinna í fisk- móttökunni sem aðstoðar- maður flatningsmanna, sem unnu þar við þessi fyrstu stig saltfiskverkunar. Vinnslan snerist sumsé ekki einungis um að frysta flök, heldur var líka talsvert af fiski saltað og einnig fór sá fisk- ur, sem ekki þótti hæfur til flaka- vinnslu eða söltunar í skreið og var hengdur upp í hjalla. Aðallega mun það hafa verið fiskur, sem legið hafði of lengi í netum sem ekki hafði náðst af einhverjum ástæðum að vitja um. Embætti mitt þarna frammi í móttökunni fólst í að tína upp fisk, sem búið var að hausa, upp á flatningsborð- ið til tveggja manna, sem stóðu þar og flöttu hvor mót öðrum; vinnulag sem líklega hefur verið upprunnið á togurunum. Til þess að menn væru ekki alltaf að snúa fisknum fyrir framan sig, þá skar annar niður með beingarðinum og aftur úr, en hinn skar úr bein- garðinn og fleygði fisknum í þvottakar. Verklagnir menn gátu náð gríðarlegum afköstum við flatninguna með þessu móti. Nú er þetta allt gert í vélum og góðir flatningsmenn því orðnir fágætir. Á því borði sem ég aðstoðaði á, stóðu við flatninguna tveir eldri menn, annar þeirra var Jóhannes heitinn Bjarnason, sem kvæntur var Lilju Sigþórsdóttur, móður- systur minni, en hinn var færeysk- ur, því miður er ég búinn að gleyma nafni hans, en minnir að hann hafi heitið Pétur að fornafni. Aldrei sá maður þessa tvímenn- inga flýta sér. Þeir unnu allan dag- inn með sama hraða, hnífarnir gengu eins og þeir væru knúnir af vél sem gengi með föstum hraða. Á næsta borði voru nokkrir ungir aðkomumenn, þar var oft glatt á hjalla, mikið spjallað og hlegið, teknar pásur en skorpur í milli. Gekk þá oft mikið á og boðaföll á alla kanta. En eftir daginn var magnið frá þeim aldrei neitt nálægt því jafn mikið og hjá „gömlu“ mönnunum. Þess utan man ég eftir því að Oskar Þorgils- son frá Bug, sem var þarna verkstjóri, vakti athygli mína á því að á dálkunum sem gengu frá Jóhannesi og Fær- eyingnum sást varla arða af fiski, en frá hinum var ansi mikið af fiski sem fór for- Séð niður á Suðurgarðinn. Til vinstri er hornið á Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur. Stapafell nýkomið til hafnar frá Svíþjóð með flöggin uppi.

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.