Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Blaðsíða 48
46
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
Húsakostur Jökuls h.£ á Hellissandi.
Vestmanneyja og búið að kaupa
nýtt skip frá Noregi sem við gef-
um nafnið Arnkell SH 138. Arn-
kell var 110 lesta tréskip og Jökull
h.f. átti hann í nokkur ár. Leifur
Jónsson var skipstjóri. A þessum
árum voru margir hér á Snæfells-
nesi að kaupa skip. M.a. bátarnir
í Ólafsvík og Skarðsvíkin sem
kom 1960. Umsvifin og afköstin
hjá Jökli jukust ár frá ári. Margir
bátar voru farnir að landa í Rifs-
höfn. Pétur Sigurðsson var í
viskiptum hjá okkur á tveimur
vertíðum. Kristján Guðmundsson
kemur úr Stykkishólmi með
Tjaldinn og landar hjá okkur
í a.m.k. tvær vertíðir áður en
hann byrjaði sjálfur að verka.
Hafrúnin var keypt á þessum
árum og við áttum þann góða bát
í nokkur ár. Bátar komu frá
Skagaströnd t.d. bátar sem hét
Skallarif og Völusteinn og þá átti
Lárus Valdemarsson.
Þá landaði hjá okkur í mörg ár
stórvinur minn Jón Magnússon á
Vestra. Okkar tryggasti viðskipta-
vinur alla tíð og uppistaðan í afl-
anum til Jökuls var Kristinn Jón
Friðþjófsson á Hamri. Hann var
hjá okkur þar til hann fór sjálfur
að verka í Sjávariðjunni. Jökull
hættir svo rekstri 1991.
Fyrsti verkstjórinn í Jökli var
Sumarliði Andrésson í Viðvík.
Sérstakur öðlingur, traustur og
farsæll. Sumarliði var hjá okkur
þar til hann féll frá í ágúst 1969.
1 Jökli var jafnan úrvals fólk. Það
er gott að hugsa til þess og minn-
ast þeirra dugmiklu kvenna og
karla sem þar störfuðu. Síldarsölt-
Þingflokkur Alþýðubandalagsins á áttunda áratugnum. í hópnum eru tveir varamenn - Skúli íyrir
Jónas Arnason og Vilborg Harðardóttir fyrir Magnús Kjartansson.
það hverjir fari hér í framboð.
Jónas Árnason flytur í kjördæmið.
Hann er valin af heimamönnum
til að skipi fyrsta sætið í kosning-
um 1967 en nær ekki kosningu.
Árið 1971 skipar Jónas aftur
fyrsta sætið og kemst á þing. Jónas
vildi fá mann fyrir sig á þing með-
an umræða um fjárlögin stæði
yfir. Hann taldi sig ekki nógu
kláran í þann slag. Eg fór því inn
á þing þetta haust, í fyrsta sinn,
og var fram að jólum. Ég var svo
inni á Alþingi af og til því Jónas
þurfti að sinna ýmsu öðru en
þingmennskunni. Hann fór fyrir
Lúðvík til Bretlands til kynna
málstað Islands í landhelgismál-
inu, á þing Sameinuðu þjóðanna
og margt fleira. Auk þess sem
hann var oftast með leikrit eða
önnur skáldverk á skrifborðinu.
Það þýddi það að ég var orðin
hagvanur á þingi þegar Jónas
hættir haustið 1979. Alþýðu-
bandalagsmenn á Vesturlandi
töldu þi. sjálfsagt að ég tæki hans
sæti. Ég taldi það skyldu mína að
sinna því kalli. Ég gat sloppið frá
mínum umsvifum vegna þess að
Hulda dóttir mín var búin að ná
sér í mann, Hallgrím Guðmunds-
son, sem var tilbúinn að taka við
Jökli. Hallgrímur stjórnaði Jökli
með sóma alla tíð.
Við þingmennirnir af Snæfells-
nesi ég og Alexander Stefánson
unnum náið saman þegar um
máefni Vesturlands var að tefla.
Helstu kjördæmismálin voru sam-
Alþingismaðurinn
Þegar ég kom hingað var ég
mjög áhugasamur um stjórnmál,
hernámsandstæðingur og félagi í
Sósía 1 istaf 1 okkmí m. Ég skipti mér
af alþingiskoningum en þar voru
mínir menn í framboði fyrir Sósí-
alistaflokkinn og svo Alþýðu-
bandalagið þeir Guðmundur J.
Guðmundsson og seinna Ingi R.
Helgason. Svo gerist það að Kjör-
dæmisráð Alþýðubandalagsins er
stofnað hér á Vesturlandi árið
1959 Þá teljum við okkur eiga að
ráða meiru en flokksforustan um
un var reynd í Jökli um 1960. Sá
hét Árni Hólm sem kom þeirri
prufu í gang. Seinna söltuðum við
síld í nokkur haust í Jökli, það
gekk alltaf vel og skilaði góðum
hagnaði. Á þessum árum var líka
söltuð síld í Rifi hjá Kristjáni
Guðmundssyni og í Ólafsvík bæði
í Hróa og HÓ.