Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Blaðsíða 49
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
47
göngumál eins og hafnarbætur og
vegagerð. Það varð einnig að
leggja sig alla fram við það að ná
framalgi til skólabygginga, heilsu-
gæslustöðva o.fl. Það náðust svo
sem margir góðir áfangar á þess-
um árum þótt manni fyndist
aldrei nóg að gert.
Borgarfjarðarbrú, upphaf lagn-
ingu bundins slitlags á vegi, ýmsir
áfangar í hafnargerð, Hvalfjarðar-
göng, þverun Gilsfjarðar komin á
skrið og vegurinn undir Enni
o.fl.o.fl.
Þegar vegurinn undir Enni var
opnaður til umferðar sumarið
1983 voru tuttugu ár frá því að
vegurinn í Enninu var gerður. Það
voru fyrst og fremst tveir ráðherr-
ar í Viðreisnarstjórninni sem
stóðu að þeirri framkvæmd þeir
Gunnar Thoroddssen og Emil
Jónsson. I dag er erfitt að gera sér
grein fyrir þvi hvað mikið breytt-
ist til góðs fyrir utan Ennið með
Ennisveginum.
A fyrri hluta þingmannsára
minna var Lúðvík Jósepsson for-
ingi okkar, óskaplega snjall maður
og fylginn sér og barðist fyrir hug-
sjónum sem hann svo sannarlega
hafði og svo framkvæmdum.
Landhelgismálið var ógleyman-
legt í meðförum hans. Svo komu í
forustuna Svavar, Ragnar, Mar-
grét, Ólafur Ragnar o.fl. Mikið
úrvalslið. Ur hinum flokkunum
man ég best eftir Steingrími Her-
mannssyni, Gunnari Thoroddsen
og Halldóri E. svo að sjálfsögðu
öllum þingmönnum Vesturlands-
kjördæmis.
Kvótakerfið sett á
I minni þingmennskutíð var ég
álitinn fyrst og fremst fiskverkandi
en ekki félagsmálamaður, sem ég
var ekki síður. Þegar frumvarpð
um kvótakerfið kom fram haustið
1983 áleit ég strax að þar væri
ekki farið rétt að. Stór hluti
flokksins, þó fyrst og fremst Nes-
kaupstaðarvarvaldið, studdi
kvótakerfið. Þó var Lúðvík Jóseps-
son ekki á þeirra línu. Ég beitti
mér eins og ég gat í flokknum og
á Alþingi á móti aflamarkskerfinu
en þeim tókst að plata frumvarpið
í gegnum þingið m.a. með því að
þetta væri aðeins prufa í eitt ár.
Svo var allt endurnýjað 1987. Eg
hélt áfram andstöðu og benti á þá
galla sem voru komir í ljós. Eg var
illa séður af sumum flokksfélög-
um mínum og eklci síður af ýms-
um valdamönnum sem vildu
styrkja þetta kerfi í sessi.
Málaferlin
Eg er ekki í nokkrum vafa um
að þau málaferli sem hófust gegn
mér og mínu fyrirtæki árið 1985
voru bein pólitísk aðför. Allur
málatilbúningur var aðeins tilbún-
ingur úr sjávarútvegsráðuneytinu
Kolbeinsson undirritaði. Þar er
ekki spurt um sekt eða sakleysi
heldur aðeins þörf á því að fá dóm
til að geta fylgt öðru eftir.
Skúli hefur geymt öll skjöl sem
urðu til við málaferlin. Til stuðn-
ings því er segir hér að ofan les
hann upp úr þeim skjölum .
„í starfi sínu hefur ráðuneytið
orðið vart við að athygli manna
hefur beinst að málarekstri Jökuls
h.f. Ýmsir forráðamenn fyrir-
tækja, sem fengið hafa athuga-
semdir varðandi fyrirtæki sín virð-
ast bíða eftir lausn þessa máls.
Jafnframt hefur ráðuneytið orðið
undir forustu Halldórs Ásgríms-
sonar. Það eina sem fannst var að
trilla hafði landað inn í Jökul
nokkrum kílóum af ýsu sem átti
að vera þorskur. Þeir ákærðu fyrir
það að nýtingin í framleiðslunni
hjá okkur væri of góð. Nýting er
mismunandi eftir árstímum og
ástandi fisksins sem unnið er úr
og hvernig vinnsla fer fram. Þeir
töldu sig vita fasta nýtingartölu.
Málatilbúnaðurinn var ótrúlegur
og reikningskúnstirnar og mikið í
lagt til að fá hagstæðan dóm. Það
sem gekk ef til vill lengst kom
fram í plaggi og þar í' lokaniður-
stöðum, sem lagt var fyrir dómara
og sjálfur ráðuneytisstjórinn, Arni
vart við, að fyrirtæki sem viður-
kennt hafa ranga skýrslugjöf og
gengist hafa inn á greiðslu and-
virðis ólöglegs afla hafa áskilið sér
rétt til endurgreiðslu verði niður-
staða máls Jökuls h.f. sú að upp-
taka með þeim hætti sem hér hef-
ur verið framkvæmd standist
ekki...........Komist aðilar upp
með það að virða að vettugi út-
hlutunarreglur á aflakvótum mun
það einungis leiða til þess að það
stjórnkerfi, sem Alþingi hefur
ákveðið að gilda skuli, mun óvirkt
verða.“
Ekki get ég annað sagt en að
þetta neyðarkall ráðuneytisins um
að fá dóm yfir Jökli h.f. sem því
Á kosningaferðalagi í Ólafsvík vorið 1987. Sigurður Þorsteinsson (Diddi í Efstabæ), Skúli og
Gunnlaugur Haraldsson sem skipaði annað sæti framboðslistans.