Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Blaðsíða 52

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Blaðsíða 52
50 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006 Konny B. Leifsdóttir flutt á sjómannadaginn Sjómenn, fjölskyldur ykkar og Snæfellskur sjómaður, Þórður aðrir sem hér eru samankomnir, Halldórsson frá Dagverðará, orti til hamingju með daginn kvæði sem hann nefndi Snæfells- jökul Lít ég þig, jökull, í ljóma frá minningum fornum, leiftra í tíbránni sagnir af minningum horfnum. Kynslóðir deyja, koma aðrar og fara. Klettar og hraundrangar þöglir í húminu stara. Hreggnasi og Búrfell, sem horfðu á umliðnar aldir, ein þekkja söguna, þættirnir reynast mér faldir. Heyrði ég í berginu hrynjandi talað málið hljóma af afli, sem bræddi segul við stálið. Enn standa fjöllin, sem fegra og gylla hvert svæði. Fegurð, sem landnema heillaði á ólgandi græði. Þess vegna sneru þeir fleiri að foldinni hörðu, fengu sér bústað og könnuðu ónumda jörðu. Enn liflr orðstír og afrekin liðinna tíma. Enn eru hetjur, sem berjast þótt kolsvört sé gríma, stríða við vegleysu og bárur, sem brotna á súðum, brimlending stórgrýtta dragandi skipin á flúðum. Já, enn standa fjöllin Jökullinn, Hreggnasi og Búrfell sem horfðu á umliðnar aldir og horfa enn. Enn lifir orðstír, enn eru hetjur sem berjast, þótt bárur brotni á súðum. Þórður var einn af þessum hetj- um hann bjargaðist úr sjávarháska fyrir ofurmannlegt þrek og var bjargað fyrir ekki minni hetju- skap, af sjómönnum sem óhikað lögðu líf sitt í hættu, sigldu bát sínum inn í brimgarðinn ef svo ólíklega vildi til að Þórður væri lífs. Frásögn Þórðar um atburð þennan, er Loftur Guðmundson færði í letur, er í senn látlaus og mögnuð. Þórður varð aldrei sam- ur maður eftir þennan aburð en hann haslaði sér völl á öðru sviði og varð þjóðsagnapersóna í lif- anda lífi. Sjómenn eru í mínum huga hetjur hafsins. Það er eins og sjó- mennska setji mark sitt á persónu- gerðina, ég tel það gæðastimpil hafi menn stundað sjó. Þeir eru hressir, tala hreint út, láta hlutina heita sínum réttu nöfnum, fljótir að bregðast við óvæntum uppá- komum, ráðagóðir, kappsamir og vogaðir. Arið 1953 flutti fjölskylda mín frá Búðum í Staðarsveit. Móðir mín Hjördis Sigurðardóttir, fóst- urfaðir minn, Sigurjón Einarsson og fjögur börn. Hann hafði keypt sér bát og taldi betra að gera út héðan frá Hellissandi. Búslóðin var flutt á vörubíl yfir Fróðár- heiði, því ekki var kominn vegur framan undir heldur þurfti að fara undir Ennið og fyrir Forvaðann. Hér átti ég mína bernsku. Hér snerist lífið um bátana fiskirí, sjó- mennsku, beitningar og flutning fisksins í frystihúsið. Þá voru menn með kýr og kindur. Fjár- húskofar voru um allt þorpið og kýr voru jafnvel hýstar í kjöllurum húsa. Við krakkarnir vorum að sniglast þetta niðri við beitninga- skúra og við frystihúsið. Niðri í 2005 fjöru veiddum við ufsa á Varar- kletti, Sílakletti og Ufsakletti og þegar nógu vel var fallið út, á Andakletti. Það mátti ganga að okkur vísum þarna. Fyrsta sjóferð mín var með Skallarifinu. Þar var pabbi kokk- ur. Allir skipverjar höfðust við frammi í lúkar, eldavélin síkynnt, var við hliðina á stiganum niður í lúkarinn, vafflaga bekkur og tvær hæðir af kojum upp af bekknum og borð í miðju. Þetta var ólíkt vistarverum nýju Engeyjarinnar, nýjasta og stærsta skipi flotans. Svo fór ég eitt sumar á síld sem hjálparkokkur með Arnkeli SH frá Rifi. Síðan eru liðin mörg ár. Draumur um að eignast bát og fara á skak hafði fylgt mér frá bernskudögum. 1997 lét ég verða af því og er þetta níunda sumarið sem ég ræ frá Arnarstapa. Eg reri ein fyrstu árin en nú erum við oft- ast bæði hjónin. Verður ekki hjá því komist að tala um sóknardagakerfið. I því kerfi var enginn hvati til sóunar, með öðrum orðum að henda fiski. Stjórnvöld linntu þó ekki látum, fyrr en þeir náðu að afleggja það í fyrravor. Nú berast fréttir vestan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.