Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Blaðsíða 55
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
peningum í kollu og sagði honum
að ef hann keypti hana, þá sæi
hann um hana sjálfur og úr því
varð. Um afa og kolluna eru síð-
an til margar sögur. Ein er sú að
hann hafi komið í heimsókn til
Stellu heitinnar hans Emma og
tekið niður hattinn og fengið sér
kaffisopa, en fundist Stella eitt-
hvað skrítin allan tímann sem á
heimsókninni stóð og því kvatt
fljótlega. Þegar hann tekur hatt-
inn sér hann hárkolluna fasta í
honum, segir hann stundar hátt.
„Nei hver djöfullinn, þetta hér“,
þá sprakk víst Stella úr hlátri.
Eins og gengur og gerist þá
óhreinkaðist hárkollan og það
þurfti að þrífa hana. Amma var
nú þrjóskari en svo að hún tæki
það í mál að sjá um það, þannig
að afi tók sig til og þreif kolluna
eins og hverja aðra ullarsokka og
eftir það varð kollan eins og ég
man eftir henni, lítil þúst á skall-
anum á afa. Læt ég þetta nægja
um afa.
„Hver vegur að heiman er veg-
urinn heim“ er sungið í þekktu ís-
lensku dægurlagi. Því verður ekki
á móti mælt, því vegurinn frá
Ólafsvík liggur aldrei bara í aðra
áttina, heldur fram og til baka.
Að loknu grunnskólanámi fór ég
suður í frekara nám sem var að
engu leyti tengt sjómennsku. Ég
hafði áttað mig á því í allri þessari
umræðu karlanna við eldhúsborð-
ið að krafta kvenmanns væri ekki
vænst til sjós. En hvert sem leiðir
okkar liggja um heiminn og hvað
sem við tökum okkur fyrir hendur
þá getum við alltaf leitað aftur til
æskuslóðanna sem hafa markað
okkar framtíð.
Eftir þrettán ára fjarveru frá
Ólafsvík, snérum við hingað heim
affur fjölskyldan. Pabbi var þá
orðinn sjálfstæður útgerðarmaður,
litli bróðir skipstjóri, mamma
verlsunareigandi og við hjónin
bæði starfandi kennarar. Gunni
minn ákvað að skella sér á sjó sem
kokkur hjá tengdaföður sínum,
því eins og segir í þekktum dæg-
urlagatexta „góður afii gerir menn
ríka“, en mér skilst nú að þessi
texti hafi verið saminn fyrir síð-
ustu kjarasamninga sjómanna.
Þegar ég hugsa um fyrsta árið
hans á sjónum þá kemur mér nú í
hug annar þekktur texti sem
hljómar nokkurn veginn svona
„þegar Gunni fór sjóinn þá var sól
______________________________53_
um alla jörð og hún stóð á
bryggjupollanum hún Jóa“ og síð-
an einhverjum erindum seinna
kemur „upp þú fjandans æludýrið
öskrað var með háum róm“ og
upp skreið einn ónefndur maður
hálf druslulegur og hefur sjálfsagt
ekki rótast neitt frá honum í þess-
um túrnum. Ég held nú að hann
sé orðin sæmilega sjóaður núna
blessaður.
Kæru hátíðargestir, við eigum
að njóta þess að búa hér í okkar
fagra umhverfi undir Jökli og við
stóran fjörð sem varðveitir lífs-
björg byggðarinnar. Samfélagið er
fjölskylduvænt, mannlífið auðugt,
sérhver manneskja er einstök, hef-
ur mikið að gefa og hver einstak-
lingur bætir annan upp.
Njótum kvöldsins og skemmt-
um okkur saman.
(9's/utm s/ómönmmi i t f}iœ/e//s/>œ
({9i jf/ö/s'Ay/c/imi freiw'a
ti/ /mmim/f ii meri i/íit/inn /
TRYGGINGA
MIÐSTÖÐIN HF.