Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Side 59
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
spurði hvort ég ætlaði að sofa í all-
an dag. Eg dreif mig á fætur hálf-
skömmustulegur og fékk mér
morgunmat og kíkti svo út á
lega stórum fiski sem þeir hentu
fyrir borð. Einhver sá á mér
furðusvipinn og sagði mér að
þetta hefði verið blágóma og hún
Þórir SF 77.
dekk. Það verður nú að viður-
kennast að á þessum árum þekkti
ég varla muninn á þorski og ýsu,
enda uppalinn í sveit langt frá sjó.
Ég hafði nánast aldrei komið ná-
lægt fiski fyrr nema þá til þess að
borða hann og þá var hann yfir-
leitt flattur eða flakaður þannig að
ég var ekkert viss um hvaða fiskur
var að koma inn á línunni.
Ég var hissa að sjá á eftir sæmi-
væri ekki æt. Fleira fór af ruslfiski
aftur í hafið, svo sem tindabykkja,
lýsa, smáufsi og fleira. Ja hérna!
Var þá til eitthvað sem hét rusl-
fiskur. Ég hafði aldrei hugsað út í
það að í sjónum væru til fleiri
fiskar en nytjafiskar. Afli var í lak-
ari kantinum í þessari fyrstu sjó-
ferð minni. Við komum aftur í
land eftir miðjan dag laugardag-
inn 24. júní.
57
Heila viskíflösku
Ég var nú heldur en ekki mont-
inn með mig, fann ekki fyrir sjó-
veiki og steig ölduna mannalegur
á leiðinni heim. En það fór af mér
mesta montið þegar ég brölti upp
á bryggjuna. Það var engu líkara
en ég hefði drukkið heila
viskíflösku því ég hélt ekki jafn-
væginu er ég steig á land. Þeir
hlógu að mér strákarnir og sögðu
að ég væri með sjóriðu. Diddi
sagði að ég væri heppinn að vera
ekki sjóveikur. Sjóriðan hvarf eftir
smá tíma eftir að ég kom í land.
Upp frá þessu fékk ég marga
lausaróðra á mörgum bátum á
Hornafirði, sem háseti eða vél-
stjóri. Vélstjóraskortur var þá á
Hornafirði og var notast við þá
sem eitthvað höfðu umgengist
vélar.
Og ekki spillti það fyrir, að ég
var með bifvélavirkjaréttindi.
Þannig var nú upphafið á minni
sjómennsku. Arið 1981 flutti ég
svo til Skagastrandar og var þar á
frystitogaranum Örvari HU 21
sem var fyrsti íslenski frystitogar-
inn. Þar var ég í tíu ár sem háseti,
en það er nú önnur saga.
(9s/uim sjómön/uwi í tfnœfe//s/jœ
aj^fjö(s/uj/c/um fein/Ht
(í//uimizujj'u mec f c/cu/inn /
Deloitte
Ólafsbraut 21 ■ sími: 430 1600 ■ fax: 430 1601