Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Blaðsíða 66
64
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
urinn í 420 kr/kg. en nú er hann
komin í 1510 kr/kg.“ segir Heið-
ar.
Nýr bátur
Báturinn sem Heiðar keypti í
byrjun reyndist vel en í september
2005 fékk Heiðar sér nýjan og
stærri bát og er hann smíðaður í
Bátahöllinni á Hellissandi. „Þessi
bátur er um 15 lestir en sá eldri
var um 6 lestir. Með stærri bát
hafa umsvifin aukist og núna eru
þrír menn að beita í landi og ég er
með einn mann með mér um
borð og við erum að róa með frá
24 og upp í 34 bala í róðri. Þetta
er miklu betra líf enda báturinn
stærri og fer betur með“ segir
Heiðar og er mjög ánægður með
bátinn. Greinilegt er að vel er
hugað að öllu um borð enda öll
umgengni til fyrirmyndar. Hann
segist ekki strax vera farinn að
huga að stækkun en það komi
bara í ljós seinna með meiri kvóta
og öðru, en Heiðar segir að hann
sé komin með um 200 tonna
ígildi á bátinn sinn. Hann er þó
samt að leigja aflaheimildir í við-
bót til að lengja úthaldið.
A s.l. ári seldu nokkrir aðilar á
Fast þeir sækja sjóinn!
Við bjóðum öll veiðarfæri og tengdan búnað fyrir togveiði,
línu- og netaveiði og björgunarvörur.
Einnig hífi- og festingabúnað og ýmsar rekstrarvörur.
Starfstöðvar ísfells og ísnets:
• ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• ísnet Akureyri - Fiskitangi
• ísnet Húsavík - Uggahúsi
• ísnet Hornafjörður - Ófeigstanga
• ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• ísfell Bolungarvík - Grundarstíg 14
ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
nafnið Brynja og er það í höfuðið
á kærustunni hans. Heiðar sagði
að honum hafi ekki verið spáð
löngum lífdögum í útgerðinni og
að hann færi fljótlega á hausinn,
þar sem margir töldu bátinn alltof
dýran og önnur skilyrði ekki góð.
Til að sýna að hann ætlaði sér að
hafa framtíð í útgerðinni og væri
sjálfur bjartsýnn, þá gaf hann fé-
laginu þetta nafn Bjartsýnn ehf,
sem er bæði skemmtilegt og sýnir
hug eigandans. „Eg fór strax á
línu á bátnum og keypti mér sig-
urnaglalínu sem hefur gefist mjög
vel. Eg beitti mest sjálfur og var
einn um borð til að halda öllum
kostnaði niðri. Þegar tegundir
voru kvótasettar fór maður að
kaupa heimildir enda var ekkert
annað að gera ef maður ætlaði að
vera í þessu. Eg hef keypt svona
smátt og smátt og kvótastaðan er
orðin nokku góð. Verðin hafa
alltaf verið í toppi og sem dæmi,
að þegar ég byrja þá er t.d. þorsk-
Brynja SH báturinn sem Heiðar hóf útgerð á.