Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Side 67
65
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
Snæfellsnesi, í smábátakerfmu,
báta sína en þá var mikil eftir-
spurn eftir aflaheimildum í því
kerfi. Heiðar segir að menn hafi
séð sér leik á borði að selja þar
sem hátt verð hafi verið í boði og
margir hafi talið að þetta kerfi
yrði lagt niður. Hann segir að um
700 tonn hafi farið frá Ólafsvík
af nokkrum bátum. Hann og
fleiri útgerðarmenn í smábátakerf-
inu í Ólafsvík hafi ekki verið sáttir
við að hafa ekki fengið að bjóða í
þann kvóta sem var á þessum bát-
um, sem seldir voru.
Kvótakerfið
„Eg er nokkuð sáttur við þetta
fiskveiðikerfi sem slíkt er við
vinnum eftir. Ég sé ekkert betra
en það er bara alltof lítið sem má
veiða eftir alla þessa friðun í
meira en 22 ár. Það mætti þó al-
veg taka út nokkrar tegundir úr
kerfinu sem ekkert hafa þar að
gera eins og t.d. karfa, skötusel og
Brynja SH sem Heiðar keypti í september 2005.
löngu sem alltaf kemur eitthvað af
á línuna. Þá þarf alltaf að eiga ein-
hver kíló af þessum tegundum.
Mitt álit er að það sé nóg til að
fiski í sjónum en hann þurfi meira
æti, en mér finnst að það ætti að
veiða a.m.k. 240 þús. tonn á ári.
Ég myndi t.d. vilja láta banna
loðnuveiðar í flottroll því það
veiðarfæri splundrar loðnutorfun-
um. Þær komast í mörgum tilvik-
um ekki hér inn á Breiðafjörð þar
sem æti vantar greinilega“, segir
Heiðar .
Stytta málböndin
„Bátum hefur fækkað talsvert í
bæjarfélaginu og það er ekki góð
þróun. Það vantar alveg skakarana
sem voru en nú eru bátar almennt
að stækka og línuveiðar að taka al-
veg yfir“, segir Heiðar. Þá segir
hann að mælingar á stærð báta sé
orðin eitthvað skrítin og búið sé
að stytta málböndin hjá Siglinga-
stofnun og nefnir þar dæmi um
Mynd: Alfons
misræmi í mælingum á bátum
sem eru 14,99 tonn.
Heiðar segist í sumum tilvikum
ekki vera sammála forystu Félags
smábátaeigenda en það sé þó
nauðsynlegt að vera með gott fé-
lag. Hér í Snæfellsbæ er félag og
margir sameiginlegir hagsmunir
eru þar ræddir. Hann segist landa
öllum sínum fiski á fiskmarkað og
er ánægður með þá þjónustu sem
þar er veitt og nefnir þá kvóta-
miðlun sem markaðurinn rekur.
Hann er þó ekki sáttur við þessa
breytingu á slægingarstuðli úr
16% í 12%, sem kom frá sjávar-
útvegsráðherra og segir það beina
skerðingu fyrir sjómenn.
Framtíðin björt
Það er gaman að ræða við Heið-
ar um heima og geima og allt sem
tengist útgerð og sjómennsku en
framtíð bæjarfélaga byggist á unga
fólkinu eins og honum og fleir-
um, sem eru að skapa verðmæti.
„Ég lít björtum augum á fram-
haldið og ekki hægt annað. Fisk-
verð er að hækka og þ>á að sjálf-
sögðu lánin einnig. A meðan ég
get borgað af bátnum, greitt laun
til fólksins sem er að vinna hjá
mér og tekið mér sjálfur laun þá
er ég bara bjartsýnn“ segir Heiðar
og er sáttur við tilveruna.
Eiginkona Heiðars er Brynja
Mjöll Ólafsdóttir og starfar hún
sem leikskólakennari og eiga þau
tvær dætur, þær Sædísi Rún sem
er tveggja ára og Eriku Rún en
hún er fimm ára.
PSJ
Sjómenn!
Inuifecjar hamingjuóskir á sj óinannadaqirm
Grandakaffi
Grandagarði 101, Reykjavík
Sími: 552 9094