Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Síða 77

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Síða 77
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006 75 k Kristinn jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ Rannsóknarsetur Þetta erindi var flutt þegar Rannsólmarsetur um lífríki Breiðafjarðar var stofnað í Ólafs- vík föstudaginn 12 maí 2006 Samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, sjávarútvegsráðherra Einar Kristinn Guðfinnsson, al- þingismenn og aðrir gestir. Eg vil eins og Orvar bjóða ykkur hjart- anlega velkomin í Snæfellsbæ. Dagurinn í dag er mikill gleðidag- ur fyrir alla íbúa við Breiðafjörð er við erum saman komin til að stofna formlega Rannsóknarsetur um lífríki Breiðafjarðar. Megin- markmiðið með stofnun rann- sóknarseturs um lífríki Breiða- fjarðar er að auka rannsóknir á líf- ríki sjávar í víðasta skilningi, með megináherslur á vistkerfið í Breiðafirði, til þess að auka þekk- ingu á vistkerfinu í þeim tilgangi að auka nýtingu auðlindarinnar og arðsemi. Ennfremur teljum við það afar milúlvægt að góð samvinna verði á meðal þeirra fræðasetra sem finnast á landinu, og má þar nefna t.d. nýtt Háskólasetur Snæ- fellsness í Stykkishólmi. Einnig vonumst við eftir góðu samstarfi við Hólaskóla um nýtingu á tækjabúnaði og að sjálfsögðu bindum við miklar vonir við mjög gott samstarf við hagsmunaaðila á svæðinu. Fagleg ábyrgð Skipulag rannsóknarsetursins verður með þeim hætti að stofnuð verður sjálfseignastofnun. Stjórn- un setursins verður tvíþætt, ann- ars vegar rekstrarstjórn sem ber fjárhagslega ábyrgð á verkefninu og hins vegar fagráð sem ber fag- lega ábyrgð og tryggir setrinu fag- legt sjálfstæði frá hagsmunaaðil- um. I fagráði verða viðurkenndir aðilar úr vísindasamfélaginu, til- kynnt verður hér á eftir hverjir sitja í fagráði og í rekstrarstjórn. Með þessu fyrirkomulagi teljum við að hægt sé að gæta þess að sú vinna sem fram fer í rannsóknar- setrinu fullnægi gæðakröfum vís- indasamfélagins, þannig að trú- verðugleiki starfseminnar verði sem mestur. Aætlanir gera ráð fyrir að fjár- mögnun rekstursins fari þannig fram að sótt verði um styrki til rannsókna úr þeim sjóðum sem bjóða slíka styrki, leitað verði eftir fjármunum af fjárlögum, auk þess sem heimamenn munu leggja til báta og búnað til rannsókna. Fjöldi starfsmanna fyrst um sinn er áætlað að verði 5 en von- andi vex þessari starfsemi fiskur um hrygg, þannig að starfsemin kalli á fjölgun starfsmanna í fram- tíðinni. Það er einlæg von okkar sem stóðum að undirbúningi að stofnun þessa rannsóknarseturs að hún muni njóta virðingar og vekja umræðu um framtíð og stöðu sjávar í Breiðafirði og landinu öllu. Rannsóknaráætlun gerð Forsögu málsins má rekja til umræðna sem fóru fram um ástand fiskistofna í Breiðafirði og þær ólíku skoðanir sem menn höfðu á því máli. Eftir að hafa fylgst með þeirri umræðu þá fór ég að ræða við nokkra aðila um hvað við gætum gert í málunum. Meðal annars ræddi ég við Einar Odd Kristjánsson alþingismann Um þesi mál og kom hann með þá hugmynd að stofna á svæðinu rannsóknarsetur til að rannsaka lífríki Breiðafjarðar. Mér leist strax vel á þá hug- mynd og til að hjálpa mér við að skoða þessa hugmynd, fékk ég At- vinnuráðgjöf Vesturlands, þ.e.a.s. Ólaf Sveinsson, til að aðstoða mig. Búin var til hugmyndalýsing fyrir verkefnið þar sem m.a. kom fram markmið, fyrirkomulag,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.