Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 5
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
3
Hugvekja
Gleðilega hátíð, Snæfellingar, til
hamingju með daginn, sjómanna-
daginn. Eg árna öllum sjómönn-
um og aðstandendum heilla, og
bið þeim öllum blessunar. Sjó-
mannadagur er hátíð en líka
minningardagur, þar sem þeirra er
minnst sem sjórinn tók. Það er
áminning til okkar allra um hve
dýru verði velsæld okkar er gold-
in. I hverju sjávarplássi um land
allt verða í dag lagðir blómsveigir
að minnisvörðum um um þá sjó-
menn sem týndu lífi á sjó. Virð-
ingin fyrir minningu þeirra og
umhugsunin um þá fórn sem þeir
færðu, og bænin fyrir ástvinum
þeirra og afkomendum, má aldrei
gleymast meðan íslenskur hugur
vakir og hjarta slær.
Margar sjóferðasögur eru sagðar,
hetjusögur af fangbrögðum við
ofurefli Ægis. Óskráð er mörg
hetjusagan um hugrekki og hetju-
lund þeirra sem heima sátu og
biðu og báðu milli ótta og vonar.
Og mörg er sagan og trúarvitnis-
hurðurinn um sigur þolgæðis, trú-
ar, vonar og kærleika andspænis
áfallinu stóra og harminum sára.
Þær eru ótalmargar bænheyrslu-
sögurnar, kraftaverkasögurnar,
sem varðveitast í huga og minning
þjóðarinnar. Þær eru hluti arf-
leifðar okkar sem varðar ekki að-
eins gengin spor í þessu landi,
heldur markar veginn til heilla og
hamingju. Auðvelt er að afgreiða
þetta sem hindurvitni og kellínga-
Hallgrímskirkja í Reykjavík
bækur. Affararsælla er þó að hlusta
eftir því sem þessar sögur eru að
segja, hlusta og taka til sín, vegna
þess að þetta eru reynslusögur úr
heiminum okkar, heiminum mín-
um og þínum. Reynslusögurnar af
samleið með Guði og glímunni
við hann, sem gefa okkur innsýn
inn í líf og hjartaþel þar sem bæn-
in á sér rúm og róm. Þær eru vitn-
isburður um Guð sem er okkur
hjá hverja stund, þótt heljarbylgj-
an rísi og hremmi.
Eftir svaðilför sem lauk giftu-
samlega sagði einn af hetjum hafs-
ins á öldinni sem leið: „Ég sá það
oftar en þá að bænir móður
minnar fylgdu mér....“ Og einnig
sagði hann: „Ég er drengur sem
veit að faðirinn stendur við stýr-
ið.“ Þetta megum við líka vita og
reiða okkur á þessa sömu návist
móðurbæna og föðurforsjónar.
Mættum við öll eiga fyrirbæn sem
fylgir okkur, og umfram allt vera
þeir feður og mæður, dætur, synir
og samferðarfólk á lífsferðinni,
sem ber á bænarörmum, og veit
sig umvafið bænum sem fylgja og
sem blessa og eilífri forsjón þess
föður sem aldrei bregst, þess mátt-
ar sem „bylgjur getur bundið og
bugað stormaher, sem fótstig get-
ur fundið sem fær sé handa þér.“
Guð geymi þig.
Karl Sigurbjörnsson
EFNISYFIRLIT
3 Hugvekja
Hr. Karl Sigurbjörnsson
5 Frjáls eins og fuglinn
Pétur S. Jóhannsson
15 Minni sjómanna
Eydís Bergmann Eyþórsdóttir
17 Þráinn Sigtryggsson, minning
Pétur S. Jóhannsson
18 Sjómannadagurinn í Stykkishólmi 1943
Einar Karlsson
20 Saga Hraðfrystihúss Ólafsvíkur h.f.
Guðmundur Björnsson
29 Að skipstjórnarnámi loknu
Gísli Bjarnason
31 Sjómannadagurinn í Ólafsvík 2007
Pétur S. Jóhannsson
32 Ofviðrið á Flæmska hattinum 1996
Pétur S. Jóhannsson
33 Runólfur Guðmundsson sextugur
Pétur S. Jóhannsson
34 Framtíðin er björt
Magnús Magnússon
38 Ræða á sjómannadegi á Hellissandi 2007
Erla Kristinsdóttir
40 Myndir frá sjómannadegi á Hellissandi
og Rifi 2007
41 Myndir frá sjómannadegi í Ólafsvík 2007
42 Ræða á sjómannadegi t Ólafsvík 2007
Tryggvi Leifur Óttarsson
44 Sjómannadagurinn í Stykkishólmi 2007
Viðar Björnsson
45 Sjómannaskólinn í Ólafsvík 1971 - 1972
Gunnar Gunnarsson
47 Lífið er saltfiskur
Pétur S. Jóhannsson
48 Rækjuróður á Hamri SH 224
49 Sjómannadagurinn á Hellissandi og Rifi 2007
Sveinbjörn Benediktsson
50 Viðtal við Jóhann Long Ingibergsson
Pétur S. Jóhannsson
59 Ur Myndasafni Sigurðar Agústssonar
60 Málshættir
Marta S. Pétursdóttir
61 Bátur
ljóð eftir Örnu Sif Dervic
62 Frá sjómannadegi í Grundarfirði 2007
63 Ævintýri á Tálknfirðingi BA 325
Jóhannes Ragnarsson
69 Trollárin í Ólafsvík
Guðlaugur Wiium
74 Slysavarnadeildin Helga Bárðardóttir 40 ára
Hulda Skúladóttir