Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Blaðsíða 9
7
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
Víkingur SH 185 sem Guðmundur byrjaði sína skipstjórn á.
kokkapláss á Víkingi. Þar var
skipstjóri Haraldur Kristjánsson,
sem kenndur var seinna við hið
stóra fyrirtæki Sjóla hf í Hafnar-
firði og stunduðu þeir nt.a. rek-
netaveiðar. Þá fer Guðmundur á
sjó með Guðlaugi Guðmundssyni
á Týr og ætlaði að vera þar í smá
tíma því hann var að bíða eftir
plássi á togara en þangað stefndi
hugur hans. Bæði voru skipin
stærri, tekjur meiri og lífeyrisjóður
sjómanna betri. Eftir veruna á Týr
fer Guðmundur á Orra, sem vél-
stjóri, en þar var Sigurður bróðir
hans skipstjóri en hann hafði boð-
ið honum pláss. Um borð var
m.a. Þórður Halldórsson, kennd-
ur við Dagverðará, skáld og málari
með meiru. Fræg er björgunin
sem unnin var 20. janúar 1954 er
Orra rak frá skipi sem hann var
utan á í suðaustan roki. Þá fóru
nokkrir rnenn á Fróða og björg-
uðu Þórði. Hann hafði þá bundið
sig í frammastrið á Orra, sem fast-
ur var á skeri utan við höfnina.
Báturinn var við það að sökkva og
fór Þórður í kaf á hverri veltu.
Hann var í sjó upp að mitti er
þeir lögðu að mastrinu. Guð-
mundur var um borð í Fróða og
hann man vel eftir þessu atviki og
man hve Þórður var þakklátur er
hann komst innfyrir borðstokk-
inn, en hann sagði; „og takk fyrir
drengir.“ Guðmundur telur að
Þórði hafi orðið meint af þessu
slysi en hann stundaði sjó-
mennsku aðeins í stuttan tíma eft-
ir þetta. Frá þessari björgun seg-
ir Ragnar Agústsson í Sjómanna-
dagsblaði Snæfellsbæjar 1999.
Formennskan byrjar
,,Mín skipstjóratíð byrjar á því
að mér er boðið að taka við Vík-
ingi sem Siggi bróðir var með og
hann var í eigu Víglundar Jóns-
sonar útgerðarmanns. Siggi og
Valdís kona hans ákveða að flytja
út á Hellissand og hann tekur þar
við bát sem hét Ármann. Fríða
kona mín vill vera í Ólafsvík og
það verður úr að ég tek við bátn-
um af honum en þetta er árið
1957. Ég er með bátinn á bæði
línu og netum. A línunni var róið
fyrst í janúar með 20 bala en svo
lengdist línan eftir því sem leið á.
Það var rosaleg keppni milli báta
um að fá sem mestan afla. Land-
mennirnir tóku líka þátt í þessu
og þeir kepptust urn að koma sem
mestri línu í balana. Mér er
minnistæður hann Siggi Stein-
þórs, en hann var landformaður
hjá okkur á Víkingi og mikið
kapp í honum. Það var líka hart
sótt á þessum bátum. Víkingur
lak mikið og það var eins og á í
kjalsoginu á honum. Ég ákveð að
fara með bátinn í Stykkishólm í
norðaustan roki til viðgerða og
með mér fór einn maður sem var
á Hrönninni og hét Hjálmar og
hann þekkti leiðina eins og putt-
ana á sér. Þegar við komunt þang-
að þá er ekki hægt að taka bátinn
upp í slipp vegna íss við slippinn.
Það verður úr að ég fer til baka
með bátinn einn út í Olafsvík.
Það endar svo með því að ég fer
með hann á Akranes og þar er
slegið í hann.
Mikill lánshundur
Ég held svo áfram að veiða á
vertíðinni og fiska bara vel á lín-
unni og svo um vorið fer ég aftur
inn í Hólm með bátinn. Svo þeg-
ar báturinn er búinn, hringir
Óskum sjómönnum á Snæfellsnesi
og fjölskyldum þeirra
til hamingju með daginn
ALÞÝÐUSAMBANDÍSLANDS
Ö'S'/tiwn g/óniöntUMn
<>(ÁJ/öh'/ttj/t/u/ti /teiu/Ht
fi//a/ni/if/fu /tiefí i/atjfin/i.
liirn IHK inn ~ "5
Illl ... mE -_ B
ÍSll ehf.
Norðurtanga 8 / 355 Ólafsvlk
1030 Gsm: 891 9508 894 3442