Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Side 77
75
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
ábendingar um það sem upp á
vantar.
Aðdragandinn að stofnun deild-
arinnar var sá að Svanfríður Krist-
jánsdóttir í Artúni formaður
Kvenfélags Hellissands og Jón
Guðmundsson maður hennar
hófu máls á stofnun kvennadeild-
ar við nokltrar konur hér í þorp-
inu. Þau hjón sáu um allan undir-
búning ásamt Benedikt Bene-
diktssyni sem var í stjórn Slysa-
varnadeildarinnar Bjargar, sem var
stofnuð í desember 1928. Ákveðið
var að stofna kvennadeildina
formlega og fá erindreka frá SVFI
vestur. Nafn deildarinnar „Helga
Bárðardóttur“ fannst eftir miklar
umræður og heilabrot, Helga var
stórbrotin kona og mikil hetja,
fannst konum því við hæfi að
yngja hana upp.
Deildin var formlega stofnuð af
30 konum í Röst 14. mars 1966.
Sjö þessara kvenna eru enn fé-
lagar í deildinni, þær Ragnheiður
Hjálmtýsdóttir sem var gerð að
heiðursfélaga árið 2000, Guðríður
Þorkelsdóttir, Jóhanna Davíðs-
dóttir, Steinunn Kristjánsdóttir og
Valdís Magnúsdóttir sem voru
heiðraðar árið 2002, Helga Her-
mannsdóttir sem var heiðruð á
sjómannadegi 2007 og systurnar
Auður og Þorbjörg Alexanders-
dætur.
Fyrstu stjórn skipuðu þær Guð-
rún Danelíusdóttir formaður, Val-
dís Magnúsdóttir gjaldkeri, Ólöf
Jóhannsdóttir ritari, Ingibjörg
Kristjánsdóttir og Ragnheiður
Hjálmtýsdóttir meðstjórnendur.
Allir stofnfélagar borguðu 100 kr.
sem stofngjald til deildarinnar auk
50 kr. árgjalds; Helga Hermanns-
dóttir og Þórný Axelsdóttir voru
endurskoðendur.
Hannes Hafstein erindreki
Slysavarnafélags íslands setti
stofnfundinn og stýrði honum.
Hann las upp lög Slysavarnafélags
Islands sem deildin starfaði eftir
þar til hún varð hluti af Slysa-
varnafélaginu Landsbjörgu, við
tilurð þess árið 1999.
Námskeið
1967 Umferðarfræðslan hefst, var fastur hluti af starfmu á hverju hausti
næstu árin ýmist í skólanum eða í Líkn 1
1975 Byrjað að gefa börnum endurskinsmerki, hefur verið gert síðan.
1969 Stefán Jóhann Sigurðsson með fyrsta skyndihjálparnámskeiðið fyrir
bæði kynin, haldin hafa verið 4 námskeið síðan; 1974, 84, 94 og 96.
1973 Námskeið í meðferð súrefniskúta.
1990 Sjómannaskólinn með námskeið hér .
1996 Barnfóstrunámskeið Rauða krossins haldið.
1997 Haldinn fyrirlestur um áfallahjálp í kjölfar snjóflóðanna fyrir vestan.
Fundir, þing og önnur verkefni
Fyrsti fulltrúi deildarinnar fer á Slysavarnaþing, það verið gert allar
götur síðan ef aðstæður kvenna hafa leyft það.
Eldri borgarar fá ókeypis aðstöðu í Líkn einn dag í viku fyrir
félagsstarf. Deildin hefur tekið þátt í árvissu Kúttmagakvöldi í Röst
fyrir eldri borgara frá 1994, með Lionsklúbbi Nesþinga og
Leikfélagi Ólafsvíkur.
Haldinn formannafundur hér undir yfirskriftinni, Fólk í fyrirrúmi.
Kaffi og meðlæti fyrir sendinefnd frá SVFÍ og Gufuskálanefnd í
Líkn. Saga félagsins send til SVFÍ vegna skráningar á starfinu
um land allt.
Slysavarnafélag íslands og Landsbjörg fá Gufuskálar fyrir
fullkomna þjálfunarmiðstöð, starfsemin hefst formlega 2000.
Landshlutamót unglingadeilda „Gagn og gaman“ á Gufuskálum,
Deildir kvenna frá Reykjavík koma í heimsókn, kaffi og meðlæti
fyrir hópinn í Líkn.
Landsþing kvennadeilda á íslandi haldið á Gufuskálum, konur úr
deildinni aðstoða á þinginu. Tekið á móti unglingum frá Irlandi.
1999 og 2000 fjáröflunardansleikur til að safna fyrir hljóðkerfi í Röst.
2000 Formannafundur á Gufuskálum.
2001 Kvennaþing á Gufuskálum, félagar frá Landsbjörgu komu.
2002 Boð á Bessastaði vegna heiðrunar þyrluflugmanna eftir
Svanborgarslysið.
2003 Kaffihlaðborð í tilefni afhendingar gjafar til björgunarsveitanna
Bjargar og Sæbjargar auk björgunarbátsins frá aðstandendum
Svanborgar SH.
2006 Afmælishóf á Hótel Hellissandi
2007 Kaffihlaðborði ásamt Sumargjöf í tilefni nafngiftar Lífsbjargar og
fyrstu skóflustungu að nýju húsi við Rifshöfn.
Kvennaþing á Gufuskálum.
2008 Konum boðið að kaupa merktar flíspeysur, greiddar niður með
afmælisgjöf frá Landsbjörgu
Fyrsta stjórn félagsins. F.v. Ragnheiður, Inga, Dúna og Lóa.
1967
1990
1995
1996
1997
1997
1998
1999