Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 71
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
69
Guðlaugur Wiium ^
Trollárin í Ólafsvík
Guðlaugur Wiium var vél-
stjóri, trillukarl og síðar lög-
reglumaður í Ólafsvík og bjó
árin 1963 til 1997 i Ólafsvík
Hann starfar nú sem lögreglu-
maður í Reykjavík. Hann afl-
aði m.a frétta frá Ólafsvík fyrir
dagblaðið Vísir og Morgun-
blaðið hér á árum áður og tók
mikið af myndum og birtast
þær í næsta blaði. í eftirfarandi
grein segir hann frá trollárun-
um í Ólafsvík á skemmtilegan
hátt og þakkar Sjómannadags-
blaðið honum þessa áhuga-
verðu samantekt. Guðlaugur er
giftur Hjördísi Jónsdóttur frá
Ólafsvík og eiga þau 3 börn,
öll alin upp í Ólafsvík.
Fundu flugvélar og fugla
Fyrir nokkru datt mér í hug að
gaman væri að rifja það upp þegar
trollveiðiskapurinn hóf innreið
sína í Ólafsvík. Vorið 1966 var
eitthvert millibilsástand á bátum í
Ólafsvík. Netavertíðin búin og
ekki farið lengur á síldina á þess-
um bátum, sem við getum kallað
minni báta á síldinni eins og t.d.
Jón Jónsson SH-187 og Steinunni
SH-207. Stærri og öflugri bátar
voru þá komnir til sögunnar í
síldveiðunum. Til gamans má geta
þess að bátarnir Jón Jónsson og
Steinunn voru með svo stórar og
þungar nætur sem varð til þess að
astikið vísaði þar af leiðandi allt of
mikið upp.
Gárungarnir sögðu að astikið
finndi bara flugvélar og fugla á
flugi. Síldveiðarnar á þeim bátum
hafa líklegast lagst af vegna smæð-
ar bátanna. Jón Jónsson var um
60 til 70 tonn og Steinunn mæld
eitthvað stærri. Svo hvarf síldin
1968 en það er nú önnur saga.
Stakkholtsútgerðin
Bátarnir Jón Jónsson og Stein-
unn höfðu verið gerðir út af
Halldóri Jónsson ásamt sonum
hans, Jón Steini, Kristmundi og
Leifi. Stakkholt var síðan stofnað
1967 um þessa útgerð og saltverk-
un.
Jón Steinn var með Jón Jónsson
og Kristmundur með Steinunni.
Víkingur yngsti bróðirinn er
miklu yngri og kom ekki inn í
þetta fyrr en síðar. Var hann einn
af eigendunum ásamt systrunum,
Pálínu, Báru, Bylgju og Eddu.
Einnig gerðu þeir út Halldór
Jónsson SH 217. Dugði hann
lengur á síldinni og gerði það gott
enda stærri bátur um 100 tonn.
Hann var á þessum tíma gerður út
með þorsknót, að minnsta kosti
eina vetrarvertíð. Fiskaði hann
mjög vel og mokaði inn þorskin-
um í nótina. Skipstjóri á honum
var Leifur Halldórsson. Vorið
1966 var ákveðið að gera bátana
Jón Jónsson og Steinunni út á
humartroll.
Siggi kveikur
og fleiri góðir menn
Bárður Snæfellsás SH hafði ver-
ið áður á humartrolli og gert það
gott. Fiskaði bæði bolfisk og hum-
ar. Fengið var leyfi fyrir humar-
veiðum og farið að útbúa bátana.
Ég hafði verið á síðutogara og
vissi sitthvað um þetta og kunni
örlítið fyrir mér í bætningum.
Þó myndin tengist ekki beint greininni þá fyígir hún hér með en hún er af kappróðrarliði HÓ á
Sjómannadag árið 1966. Frá vinstri Hjördís Jónsdóttir eiginkona greinarhöfundar, Lilja Hjelm,
Ingibjörg Kristjónsdóttir, Sigríður Guðmundsóttir, Þóra en föðurnafnið vantar, Jóhanna Olivers-
dóttir og Hulda Ingvadóttir en þær kepptu íyrir ógiftar.
ÍSLENSKA GÁMAFÉLAGIÐ EHF