Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Side 37
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
35
Á þennan bát, Kristinn SH 112, fískuðu þeir feðgar mikinn ýsuafla.
2000 og Ingvar Frey fæddan 2003
en fyrir átti ég eina dóttur Al-
exöndru Ýr fædda 1992.
Yfir til þín Bárðnr. Nú befur þú
verið lengi til sjós, hvemig er ferill-
inn í stórum dráttum?
Eg byrjaði fermingarárið til sjós,
sem smyrjari í vél, á togaranum
Haukanesi frá Hafnarfirði.
Tveimur árum síðar lauk ég gagn-
fræðaprófi úr sjóvinnudeild Lind-
argötuskóla í Reykjavík með 30
tonna réttindi. Ég var því sextán
ára þegar ég einhenti mér alveg á
sjóinn. Þegar við fluttum á Hell-
issand fyrir miðjan níunda áratug-
inn var ég búinn að vera að róa á
bát frá Rifi í nokkur misseri,
þannig að fjölskyldan flutti eigin-
lega á eftir mér. A þessum tíma
keypti ég mér trilluna Gægi fyrir
sumarútgerð. Sú trilla sökk við
bryggju eftir að ég hafði notað
hana nokkur sumur. Á árunum
1988-1996 var ég mikið að róa
fyrir aðra m.a. Halla Pé eða Har-
ald Guðmundsson og son hans
Pétur Haraldsson. Ég stofnaði út-
gerðina Breiðavík 1997 og keypti
þá 5 tonna bát sem hét Breiðavík
eins og útgerðin. Sá bátur sökk
1998 og eftir það tók ég mér
nokkra mánuði í umhugsunarfrest
hvað skyldi næst taka til bragðs.
Við Þorsteinn ræddum m.a. um
samstarf.
Þorsteinn, enduðu þcer samrceður
ekki með samstarfi?
Jú, mikið rétt. Ég hafði keypt
mér 3 tonna bát 1998, sem hét
Kristinn, og þegar við pabbi fór-
um í samstarf þá notuðum við út-
gerðarnafnið hans og kennitölu
þeirrar útgerðar en ég lagði bát og
kvóta í púkkið. Við létum síðan
fljótlega smíða nýjan 6 tonna bát
af gerðinni Víkingur 800 hjá
Samtak í Hafnarfirði og fengum
við hann afhentan 1999. Sá bátur
hét Kristinn. Við stækkuðum að-
eins tveimur árum seinna þegar
við létum smíða 15 tonna bát af
gerðinni Víkingur 1135, einnig
hjá Samtak, og hét hann einnig
Kristinn og voru 3 í áhöfn. Við
breyttum nafninu á honum yfir í
Júlíus Pálsson þegar við fengum í
fyrra nýjan yfirbyggðan plastbát af
gerðinni Kleópatra 38 og fékk
hann Kristinsnafnið. Júlíus Páls-
son er nýseldur en við höfum í
staðinn keypt nýjan notaðan bát
frá Grindavík og nýlega tekið
hann í notkun en hann hafði
undanfarnar vikur verið í breyt-
ingum inn í Stykkishólmi. Hann
heitir Kristinn þannig að þá erum
við komnir með Kristin stóra og
Kristin litla.
Bárður, af hverju Kristinsnafnið og
af hverju þessi öru bátaskipti?
Kristinsnafnið er auðvitað til
minningar um Kristin, drenginn
sem við misstum nokkurra vikna
gamlan 1977. Það hefur rnikil
gæfa fylgt bátunum okkar sem
hafa borið þetta nafn, óhappalaust
og við höfum alltaf fengið gott
start, góða byrjun, góð aflabrögð
með hverjum nýjum bát. Varð-
andi ör bátaskipti þá erum við
alltaf að þróa okkur og í því fellst
að leita að og finna hentugri og
öflugri bát. Bát sem fer betur með
mann því alltaf verður maður
eldri með hverju árinu og vill þá
fá þægilegri og þokkalegri vinnu-
aðstöðu. Einnig ráða hagkvæmn-
isástæður, kröfur um öflugri bát
en samt sparneytnari o.s.frv.
Kristinn SH 112, nýjasti báturinn þeirra.