Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Blaðsíða 11

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Blaðsíða 11
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 9 vera byrjaði á Stapafellinu. Lóndrangar hf kaupa í nóvember þetta sama ár vélbátinn Sigurð Bjarna frá Grindavík en það var 105 brl. stálbátur. Þeir gefa hon- um nafnið Lárus Sveinsson SH 126, en nafnið er komið frá bróð- ur Guðmundar Sveinssonar en hann fórst á höfninni í Ólafsvík 1947 er vélbátnum Framtíðinni hvolfdi. „Sagan í kringum kaupin á því skipi er, að þá var mjög erfitt að fá fyrirgreiðslu til skipakaupa. Það var komið svo langt að við vorum á leið til Grindavíkur til að segja seljendum að það gæti ekki orðið af kaupunum. Þá hittum við útgerðarmanninn Jón Sigurðs- son frá Grindavík á Keflavíkur- veginum en hann átti fyrirtækið Lýsi og mjöl hf, alveg sómamaður, og ég segi honum stöðuna. Hann segir þá við mig að það verði eng- inn vandi að leysa þetta. „Eg lána ykkur kaupverðið strákar mínir og það fær enginn bátinn nema þið.“ Hann þekkti mig frá því á síld- inni á Stapafellinu og við lönduð- um stundum hjá honum í Grindavík, en hann var þá með síldarverksmiðju. Þetta gekk allt saman mjög vel og Víglundur sá um að allt væri í skilum og eklíi við öðru að búast af honum.“ Stærsti netaróður í Ólafsvík. Arin 1968 og 1969 var mjög lé- leg netaveiði á Breiðafirði en á báðum vertíðunum var Lárus Sveinsson með mestan afla báta úr Ólafsvík. Bátar fóru á veiðar suð- ur á Selvogsbanka og lönduðu þá í höfnum á Reykjanesi og austur í Þorlákshöfn. Þar var þá góð veiði af fallegum fiski. Ahöfninni á Lárusi Sveinssyni er veturinn 1968 minnistæður, en sá vetur einkenndist af miklum brælum en góðum afla. Á páskum þennan vetur kom Guðmundur til Ólafs- víkur á Lárusi með 72 tonn af fiski, sem fékkst í tólf trossur á Selvogsbankanum. Það var mikið að gera í Hróa við að vinna þenn- an mikla afla en svona var lífið þá, fólk vann oft yfir páska ef með þurfti og eru margar sögur til um það. ,,Mig dreymdi fyrir þessum vetri,“ segir Guðmundur ,,og draumurinn var á þá leið að mér fannst Állinn þorna alveg upp og ég gekk eftir honum. Ég var alltaf að kíkja eftir hvort sjórinn væri ekki að koma. Ég sagði einhverj- um þennan draum og hann réð hann þannig að enginn fiskur yrði á Breiðafirði og það gekk eftir.“ Fyrir þennan róður var mesti afli sem borist hafði af netabát til Ólafsvíkur af Stapafellinu en það var 1961, en þá kom Tryggvi Jónsson með 70 tonn úr einum róðri. Draumfarir ,,Ég man það líka þessa vertíð að við fórum út frá Þorlákshöfn á skírdag í vestan stormi og allir héldu að ég væri orðinn vitlaus og enginn bátur fór út. Við náðum að draga eina trossu og það voru 15 tonn í hana. Svo fórum við í aðra trossu og netin fóru upp á stefni og þá lét ég skera á hana og Lárus Sveinsson SH 126 Seitdum úsýúuötMoím <z S(tce^ett<uteúi oy fie&vuz ^ectt<zóúÁOt í titefati \ Guðmundur Runólfssdn hf Sólvöllum 2, 350 Grundarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.