Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Blaðsíða 32
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
_30____________________________
laga sem maður kynnist og koma
þeir víðs vegar að af landinu, með
eins ólíka reynslu af sjómennsku
og þeir eru margir. Góðir kennar-
ar eru einnig ofarlega í huga
manns og eru þeir ýmist fyrrver-
andi skipherrar, skipstjórar eða
bara áhugamenn um íslenska sjó-
mennsku en þeir kennarar eru þá
helst að kenna stærðfræði og
tungumálin öll sem við þurfum
að kunna. Kennslan í skólanum
tekur á mörgun þáttum lífsins og
auðvitað er mikið talað um
ábyrgð því mikil ábyrgð fylgir því
að vera skipstjóri , allt frá því að
vera á litlum dagróðrarbát upp í
að vera með hin heimsins stærstu
skip t.d. stór farþegaskip sem
flytja þúsundir manna.
Ýmis vandamál koma upp
Við skipstjórnarmenn þurfum
að geta tekið á ýmiskonar vanda-
málum sem geta skotið upp koll-
inum úti á hafi. Menn gætu
þurft einhvern til að tala við um
sín stærstu vandamál , en sjómenn
hafa oft mikinn tíma til að hugsa
um lífið í landi og sumir hverjir
velja sjómennskuna til að komast
í burtu frá vandamálum sem þar
eru og er þá gott að hafa skip-
stjóra sem kemur með góð ráð. Ef
skipverji slasast um borð þá er
skipstjóri búinn að fá þá fræðslu
sem hann þarf á að halda til að
geta unnið eftir fyrirmælum lækn-
is í gegnum síma. Við fáum
einnig fræðslu um stjórnum
mannskaps senr er hjá okkur um
borð og held ég að sú fræðsla hafi
setið á hakanum einhver ár í
gamla daga því einhvað er um að
skipstjórar séu hálfir útum brúar-
gluggann, háöskrandi á mann-
skapinn.
Mikill heiður
Síðastliðið haust tóku Eimskip
og Fjöltækniskóli Islands (sem er
sameinað nafn Stýrimannaskólans
og Vélskólans) upp samstarf og
mun Eimskip styrkja skólann til
tækjakaupa. Einnig mun Eimskip
veita þeim sem þeir kalla úr-
valsnemendur, styrk að vissri upp-
hæð og mun þessum nemendum
bjóðast starf hjá félaginu að námi
loknu. I ár hlutu tveir af skip-
stjórnarbraut þennann styrk og
var ég annar þeirra og er það mér
mikill heiður að hafa fengið hann
því margir sem með mér eru í
skólanum eiga rétt á svona viður-
kenningu.
Skipstjóri á
skemmtiferðaskipi
Eins og fram hefur komið er út-
skriftin mín nú í vor, nánar tiltek-
ið 23. maí og eru margir farnir að
spyrja hvað tekur svo við hjá ný-
útskrifuðum skipstjórnarmannin-
um. Fátt hefur verið um svör við
þessarri spurningu enn sem kom-
ið er, en ég er ekkert hræddur um
atvinnuleysi að minni hálfu. Er
stefnan sett á skipstjórnarstólinn
í stórri brú skemmtiferðaskips á
siglingu um öll heimsins höf, sem
vonandi rætist í framtíðinni. Að
lokum vil ég þakka fyrir að fá að
koma að þessu frábæra blaði með
þessu móti. Einnig vil ég þakka
foreldrum mínum og mínum
nánustu fyrir hvatningu og kær-
kominn stuðning í gegnum tíð-
ina.
Með þökk fyrir lesturinn.
Stefnan hjá Gísla er sett á stórt skemmtiferðaskip og vonandi rætist sú von. Sagafjord er 23 þúsund
lesta skip.
Fiskidjon Bylgjo hf