Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 38
36
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
Þorsteinn og Bárður um borð í bát sínum á línuveiðum.
Þorsteinn, ég sé þú iðar að fá bceta
viðþetta eða hvaðí
Já, það má segja að hver nýr
bátur hafi gert miklu meira en
væntingar stóðu til, borgað sig
upp og vel það. Hins vegar vil ég
líka nefna að við sameininguna
hjá okkur 1998 þá setturn við
stefnuna á að fara gera út ailt árið.
Þau stakkaskipti urðu síðan hjá
okkur í rekstrinum árið 2001 þeg-
ar við hættum að gera eingöngu
út héðan frá Snæfellsbæ og fórum
að gera út frá Skagaströnd hluta
ársins. Hér við Breiðafjörðinn eru
bestu aflabrögðin yfir vetrarvertíð-
ina og fram á vorið og stutt er þá
á miðin, út á fjörðinn, út fyrir nes
eða suður fyrir nes. A sumrin og
haustin er það hins vegar lakara.
Þá er hins vegar gott að færa sig
norður og gera út frá Skagaströnd
þótt vissulega sé nokkuð lengra á
miðin þar heldur en hér heima,
30-50 mílur telst vera eðlilegt
stím á miðin þar á meðan það er
kannski 10-15 mílur hér.
Bárður, hverju hefiir það breyttfyr-
ir fyrirtækio og rekstur þess að róa
frá Skagaströnd hluta ársinsi
Það hefur gert það að verkum
að nú er fyrirtækið í fullum rekstri
allt árið. Það er innkoma allt árið.
Áður vorum við með litla inn-
komu á sumrin og haustin en
þurftum auðvitað að standa skil á
okkar gjöldum og þá komum við
í mínus inn í vetrarvertíðina.
Núna komum við þokkalega
nestaðir inn í vertíðina því sumar-
og haustútgerðin frá Skagaströnd
dugar fyrir útgjöldum og rúmlega
það. Þessi útgerð fyrir norðan hef-
ur því gjörbreytt rekstrinum auk
þess sem við erum mjög ánægðir
með þjónustuna og viðmótið sem
við fáum þar.
Þorsteinn, hvað með starfsmanna-
mál og starfsmannafjölda, er það
kannski eingöngu fjölskyldan sem
kemur aðfyrirteekinu?
Nei, ekki eingöngu. Hins vegar
hefur fjölskyldan verið mjög sam-
heldin og unnið að uppbyggingu
fyrirtækisins saman. Konan mín
hefur verið í bókhaldinu, svo hafa
mamma, Jóhanna systir og Vignir
bróðir öll starfað hjá íyrirtækinu
og einnig Þröstur Þorláksson
bróðir pabba og svo mágur minn
Aron Leví Kristjánsson. I dag er
starfsmannafjöldinn hjá olckur 16
manns þar af 5 á sjó en 11 í landi
við beitningu og skrifstofustörf
o.fl. Við höfum verið heppin með
starfsfólk, það hefur t.d. verið
mikið til sama fólkið hjá okkur ár
eftir ár í beitningunni, þannig að
það er lítil starfsmannavelta, sem
er mjög dýrmætt að mínu mati.
Bárður, er kvótastaða útgerðarinn-
ar þokkaleg?
Við kvörtum allavega ekki.
Staðreyndin er hins vegar sú að
við byggjum aðallega á ýsukvóta
og ýsuveiðum. Sagan á bak við
það er sú að við einblíndum á
ýsuveiðar fyrstu ár okkar útgerðar.
Þá var ýsan utan kvóta. Síðan þeg-
ar ýsan var kvótasett þá fengum
við ríflegan ýsukvóta vegna milcill-
ar aflareynslu af ýsu.
Þorsteinn, er lítill tími fyrir fjöl-
skylduna, er sjaldan tekið frí?
Þegar við gerum út frá Skaga-
strönd þá kallar það auðvitað á
fjarverustundir frá fjölskyldunni í
nokkrar vikur eða mánuði. Hins
vegar þegar gert er út hérna heima
kemur maður alltaf heim á kvöld-
in. Regluleg frí eða sumarfrí voru
ekki tekin mikið íyrstu árin eftir
við ýttum útgerðinni úr vör en
aftur á móti höfum við farið að
gera það eftir að staðan varð
traustari. Þá höfum tekið sumarfrí
á vorin og farið eitthvað út fyrir
landsteinanna. Það er mjög mikil-
vægt fyrir fjölskylduna að fara í frí
öðruhvoru saman.
Bárður, mér sýnist að staðan sé
nokkuð góð. Ertu bjartsýnn áfram-
haldið?
Það hefur gengið vel hjá okkur
að byggja upp fyrirtækið á síðustu
tíu árum og við horfum bjartsýnir
til næstu ára.
Þorsteinn, eitthvað að lokum?
Eg vil bara taka undir það að
framtíðin er björt.
Kaffið hefur verið teigað í botn í
Miðbrekkunni þetta kvöld. Feðg-
unum er þakkað kaffið, spjallið og
kaffispjallið. Þegar gengið er út í
kvöldið er ljóst að það hefur
breyst í nótt, myrkið hefur lagst
yfir land og haf, en það er allt í
lagi því framtíðin er björt.
M&M