Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 56

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 56
54 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 var raðað upp eftir bæði stærð og ganghraða. Svo var siglt í alls kon- ar krókaleiðum og herskip fyrir utan lestina sem passaði hópinn. Eg sá skip sprengt í loft upp á þessum ferðum af tundurduflum sem Þjóðverjar komu fyrir á leið- um skipalestanna og eins voru kafbátarnir hættulegir. Þeir voru þá komnir með segulmögnuð dufl. í innmúruðum klefa Það er nú alltaf eins með okkur Islendingana, við höfðum ekki þolinmæði til að sigla þessar krókaleiðir og stungum okkur stundum út úr en við vorum reknir inn aftur. Bretinn fann upp ráð við þessum segulmögnuðu duflum Þýskaranna. Þegar við komum í gegnum Pentilinn fór- um við til Aberdeen og inn á höfnina á tveggja mánaða fresti og þá var dreginn vír í kringum skip- ið og það afsegulmagnað. Það gerði að verkum að duflin komu ekki á okkur, en áður verkaði það eins og segulstál og drógst að skip- unum. Ég man að einu sinni þeg- ar við sigldum, en þá vorum við einskipa, að upp að okkur kemur þýskur kafbátur. Það hrukku margir í kút á togaranum en ekk- ert skeði . Þeir skutu svo sem ekki á öll skip því sagt var að skotin væru svo asskoti dýr að þeir tímdu ekki að skjóta á svona fiskiskip. Það kom í ljós að erindi þeirra var að fá hjá okkur fisk í soðið og við fórum í lestina og sóttum soðn- inguna. Það voru tvær fullar körf- ur af fiski sem þeir sóttu á léttbát og svo fóru þeir í burtu en við vorum hræddir um að þeir myndu síðan skjóta á okkur en það gerðist ekki. Við fengum stór- ar byssur um borð til að skjóta á tundurdufl ef við sáum þau en ekki til að verjast, því þær dugðu lítið til þess. Á togurunum sem sigldu voru útbúnir múraðir klef- ar við stýrishúsið en það var til að við gætum hlaupið inn ef flugvél- Notalegt 3ja stjörnu hótel. Stutt í margvíslega afþreyingu m.a. Þjóðgarðinn Snœfellsjökul, gönguleiðir, söfn, golf, og margt fleira A cosy 3- star-hotel. Short distance to Snœfellsjökull National Park with many walking trails. Museum, golf and swimmingpool in the area. Upplýsingar og Pókanir í síma: 430 8600 For booking and information call: +354 430 8600 E-mail: hotelhellissandur@hotelhellissandur.is www.hotelhellissandur.is OPIÐ ALLT ARIÐ OPEN ALL YEAR

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.