Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 57
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
55
ar skytu á okkur . Svo var líka stór
prammi aftan á skipinu ef það
sykki og við kæmust frá borði en
það kom sem betur fer ekki fyrir,“
segir Jói.
Hræðslupeningar
Eins og nærri má geta var mikill
ótti í sjómönnum og ekki síst fjöl-
skyldum þeirra yfir því að eitt-
hvað myndi gerast í siglingunum
eins og var nærri daglegt brauð í
stríðinu. Þá kom það upp hjá
þeim að krefjast sérstakrar greiðslu
fyrir þá sjómenn sem sigldu með
togurunum. Utgerðarmenn vildu
eldti verða við óskum þeirra og
því var það að togarasjómenn
sýndu sinn samtakamátt og sigldu
allir í iand og héldu fund í Iðnó
og húsið var fullt af sjómönnum
og ættingjum þeirra. „Fundurinn
snerist um það að sjómenn fengju
sem aukaálag 100 krónur á hvern
dag frá því að siglt var frá Reykja-
nesi og komið var til baka aftur.
Túrinn tók þá venjulega um tíu
daga og því var þetta um 1000
kall fyrir túrinn, sem var alveg
þokkaleg greiðsla á þessum tíma.
Þetta voru síðan kallaðir hræðslu-
peningar. Það voru m.a. forsvars-
menn okkar sjómanna sem sögðu
á fundinum að það þýddi ekkert
fyrir okkur að biðja um þetta því
þið fáið þetta aldrei í gegn sögðu
þeir. Þá var eins og hent hafi verið
sprengju á okkur og við hrópuð-
um: Þá förum við ekki út á sjó og
útgerðarmenn fara þá bara sjálfir á
skipin segir Jói og lemur í borð-
ið orðum sínum til áherslu eins og
hann gerði oft áður og fyrr. „Þeg-
ar við höfðum sagt þetta þá kem-
ur Ólafur Thors fram á sviðið en
hann hafði alltaf verið á bak við
og hlustað og sagði: Strákar, þið
fáið það sem þið biðjið um og far-
ið bara út á sjó,“ sagði Jói er hann
rifjar upp þennan merkilega
fund. Ólafur var sonur Thors
Jenssonar en hann var fram-
kvæmdstjóri Kveldúlfs hf, sem átti
nokkra togara. Ólafur varð seinna
einn af áhrifamestu stjórnmálafor-
ingjum íslenska lýðveldisins, m.a.
forsætisráðherra, og var óhræddur
að fara sínar eigin leiðir. „Það
vissu það allir að Ólafur Thors
stóð alltaf við orð sín og það var
klappað mikið fyrir honum af
okkur sjómönnunum við þessi
orð hans,“ segir Jói.
Fraktskipaárin
„Það var nóg að gera í pípu-
lögnunum í Reykjavík á þessum
árum en mig langaði alltaf á sjó-
inn,“ heldur Jói áfram. „Því var
það að ég réði mig á millilanda-
skip og var á þeim í nokkur ár og
m.a á Selfossi í ein þrjú til fjögur
ár. Eg var þá í vélinni en var eldd
búinn að læra. Við sigldum mest á
Edinborg, Gautaborg og Rotter-
dam. A sumrin vorum við mest í
tunnuflutningum á Svíþjóð,
Rússland og líka til Póllands. Það
voru langar údverur og einu sinni
komst það upp í sex mánuði. Þá
var ég ekki heima á jólum í ein
þrjú skipti og konan og börnin
voru ekld ánægð með það. Ein
Fasteignasalan Valhöll
Óskum sjómönnum Bárður H. Tryggvason sölustjóri Sandari
ogjjölskyldum þeirra Ingólfur G. Gissurarson lögg. fasteignasali Skagamaður
til hamingju með daginn. Þórarinn M. Friðgeirsson Sandari
Margrét Jónsdóttir Skjalagerð
Komið til heimamanna Sesselja Tómasdóttir. Ólsari
og við munum aðstoða ykkur við kaup og sölu á fasteignum - mikil reynsla Ellert Róbertsson jrá Bijröstá Sandi
Margrét Sigurgeirsdóttir Akureyringur
Þóra Þorgeirsdóttir Árnesingur
VALHÖLL Heiðar Friðjónsson Sölumaður
IfasteiqnasalaI Pétur S. Jóhannsson Sölumaður
Fasteignasalan VALHOLL Síðumúla 27 - s: 588 - 4477 - fax: 588 - 4479 - E.mail: bardur@valholl.is