Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Page 78
76
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
Gjafir og fjárveitingar
1968 Keyptir fatapakkar fyrir Björg, í húsinu voru leitarljós, sjúkrabörur
og fleiri tæki. Gáfum sveitinni þrjú labb-rabb tæki í tilefni 40 ára
afmælis auk veitinga. Gjald var greitt á hverja konu til SVFI frá
upphafi til ársins 2000
1970 Keypt súrefnistæki,
1972 - 3 Prjónaðir sokkar og vettlingar í skýlið, stefnt að alklæðnaði ef
kæmi til skyndileitar.
1973 Gefið í Vestmannaeyjasöfnun
1975 Gísli Ketilsson gefurl2 vasaljós vegna leitarinnar að
Bjarna Sigurðssyni.
1976 Björgina styrkt til vélsleðakaupa og safnað fyrir konu
sem missti mann sinn.
1977 Gáfum ásamt öðrum kvennadeildum SVFI ræðupúlt
í 50 ára afmælisgjöf.
1985 Gunnlaugi Friðjónssyni afhentur minjagripur á SVFÍ þingi í
Vestmannaeyjum fyrir sundafrek hans.
1986 Afhjúpaður bautasteinn við Gufuskálalendinguna til minningar um
Elínborgu Þorbjarnardóttur, síðasta ábúanda á Gufuskálum, með
áletruðum blessunarorðum hennar. Settur var vegvísir að
bautasteininum. Skjöldurinn á steininum lagaður 2008. Rætt um
að kaupa 3-4 flotbúninga, húfur og vettlinga og um að koma hita
í Þorvaldarbúð.
1988 Glerskápurinn keyptur undir gjafir sem hafa borist. Könnuð kaup á
neyðarljósum á húsið.
1989 Gjöf úr dánarbúi Steingríms Guðmundssonar
1991 Björgunarskipið Sæbjörg kemur í höfn, gáfum 25.000 kr.
og kaffisamsæti. Sett skilti á höfnina til að minna á
tilkynningarskylduna. Sala á Björgvinsbeltum. Samþykkt að taka
þátt í eldtiborgarastarfi.
1992 Gefið í Þyrlusjóð. Björgvinsbeltin seld og spjöld frá Slvd. kvenna til
að minna á öryggisatriði um borð. Þakkir frá Rauðakossinum fyrir
þátttöku í fatasöfnun sem var haldin í Líkn.
1993 - 94 Keyptur þyrlupakki með Sumargjöf í Ólafsvík til að hafa
til öryggis á flugvellinum.
1996 Keyptir gallar á björgunardeildina fyrir gjafafé frá Hraðfrystihúsinu
og KG fislcverkun. Björgunardeildin óskar eftir símboðum.
1998 Keyptar 20 úlpur f. ungl.deild og styrkur til kaupa á harðbotna
gúmmíbjörgunarbáti. Björgin kemur í Rifshöfn, veitingar ásamt
Sumargjöf, gáfum Biblíu um borð.
1999 Björg gefnir bakpokar með lækningaáhöldum og súrefnisgrímum
til nota við björgunarstörf á sjó og landi.
2001 Dreldnn styrktur til írlandsferðar.
2002 Styrktum Iagfæringar á rafmagni nýja bílsins.
2003 Styrkur til Bjargar.
2006 Afmælisgjöf frá Landsbjörgu.
2007 Samþykkt að kaupa varúðarmerkingar vegna sjóbaða á
Djúpalónssandi og í Skarðsvík og að kosta lagfæringar á skýlinu í
Dritvík og að koma þar upp, í samvinnu við Lífsbjörg, myndum
frá björgunarstörfum. Gjöf til minningar um fyrsta formann
deildarinnar Guðrúnu Danilíusdóttur, ágóði af Vetrargleði.
Pósturinn veitti deildinni styrk.
Björgunarsveitin Björg gaf
deildinni borðfána í tilefni 10 ára
afmælis deildarinnar en Valgeir
Guðmundsson átti tillöguna að
merki félagsins og fáninn var fyrst
notaður í sjómannadagskaffi
1976.
Aðalfundurinn 1969 var hald-
inn í nýju húsi við Hellisbraut
sem Bjargarmenn höfðu reist.
Árið 1976 breikkaði karladeildin
dyrnar til að koma inn vélsleðan-
um sem konur aðstoðuðu sveitina
við að kaupa, en þær keyptu
einnig málningu til að mála skýlið
að innan.
1977 eru kynntar hugmyndir
um að byggja nýtt hús. Bjargar-
menn vildu hafa kvennadeildina
með, það var samþykkt einróma.
Deildin greiddi sinn hlut auk
vinnuframlags og veitinga, óskað
var eftir fjárstuðningi frá Nes-
hreppi utan Ennis. Byggingafram-
kvæmdir hófust það ár, húsið var
fokhelt í janúar 1978. Björgunar-
skútusjóður Breiðafjarðar veitti
húsinu styrk árið 1982, sem var
notaður til að kaupa útidyrahurð-
ina.
Fyrsti aðalfundurinn í Líkn var
haldinn 1985. Auglýst var eftir
nafni á húsið, íbúi sendi inn sögu
af hjónum sem fluttu hingað
blásnauð með börnin sín og þau
hófu byggingu á húsi í hólnum
við Líknina, íbúarnir vorkenndu
þeim og hjálpuðu þeim að reisa
húsið. Hjónin skírðu nýja heimil-
ið sitt Líkn.
Bílageymslan var byggð við
1991, gólflð í bílageymslu var
steypt 1996, Hamar SH gaf járn-
mottur, Nesver borgaði steypu,
Helga Bárðardóttir borgaði
vinnulaunin. Ári seinna borgar
deildin efni í loft á bílageymslu og
sement í fínpússningu og raflögn
en Hraðfrystihús Hellissands gaf
loftaefnið.
Eldhúsið og salur eru máluð
1995 og 2003, rafmagn var end-
urnýjað í vestur hlutanum 2003.
Árið 2002 gaf Fiskverkun KG
uppþvottavél og kaffikönnu, Nes-
ver örbylgjuofn, glös, könnur og
hnífa og það ár voru salernin lag-
færð. Deildin borgaði málningu á
húsið sama ár, björgunarsveitin
málaði. Á afmælisárinu var utan-
húss málningin afmælisgjöf frá
fyrirtækjum, Bára SH, Esjar SH,
Rifsari SH, Slippfélagið, Fisk-