Skógræktarritið - 15.05.2003, Qupperneq 40
og M. larici-leptolepis. Sjúkdóms-
einkenni lerkisins líkjast hins
vegar töluvert þeim einkennum
sem asksveppurinn Hypodermella
laricis Tub. veldur, þ.e. nálar sem
drepast verða brúnar og hanga
lengi á greinunum án þess að
detta af. Sá sveppur er hins vegar
disksveppur og mjög frábrugðinn
sveppnum frá Mjóanesi.
Hér er greinilega um að ræða
tegund tvíveggja asksvepps að
öllum líkindum af ættkvíslinni
Mycospftaerella, tegund sem ekki
hefur fundist annars staðar á ís-
landi. Hann drepur nálar á lerki
en útbreiðsla hans takmarkast
enn sem komið er við þetta eina
kvæmi síberíulerkis af óþekktum
uppruna á þessum eina stað.
Hann lifir þarna góðu lífi og hefur
frá því hann uppgötvaðist árið
1999 valdið svipuðum skemmd-
um öll árin og var síðsumars
2002 álfka áberandi í reitnum og
hann var um svipað leyti árið
2000.
Næsta skref í áttina að þvf að
finna rétt nafn á Mjóanessvepp-
inn myndi vera að safna full-
þroska askhirslum snemma sum-
ars og kanna hvort þær væru eins
og hér var lýst byggt á sýni sem
safnað var seinast í ágúst með
fáum þroskuðum hirslum. Hver
veit nema þetta sé í raun lerki-
blaðögn en þessar fáu hirslur
sem fundust f sýni teknu undir
haust séu einfaldlega afbrigðileg-
ar. Kanna síðan hvernig sýkingu
nálanna vindur fram og hvort það
er tilfellið að askhirslur byrji að
myndast jafnvel áður en nálin fer
að gulna og deyja. Og að síðustu
þarf að kanna hvort um vankyns
stig sveppsins geti verið að ræða
á nálunum.
Lýkur þá þessum kafla sögunn-
ar en búast má við framhaldi ef
góð sýni af sveppnum nást í
sumar.
Heimildaskrá
Guðmundur Halldórsson, Halldór Sverrisson, Edda Sigurdís Oddsdóttir og
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, 2001. Trjásjúkdómar. - Rit Mógilsár Rann-
sóknastöðvar Skógræktar 4: 1-50.
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, 1998. Sveppir valda usla á furum á snjóþungum
stöðum. Laufbíaðið 7(1): 4.
GuðríðurGyða Eyjólfsdóttir, Guðmundur Halldórsson, Edda Sigurdís Odds-
dóttir og Halidór Sverrisson, 1999. Sveppafár á Suðurlandi. Skógræktarritið
1999: 114-125.
Hartig, R. 1895. Der Nádelschuttepilz der Larche, Sphaerelta laricina n. sp. - For-
stl. Naturwiss. Z. 4: 445-457.
Patton, R. F. & Spear, R. N. 1983. Needle cast of European larch caused by
Mycosphaerella laricina in Wisconsin and lowa. Plant Disease 67: 1149-1153.
Þröstur Eysteinsson, Guðmundur Halldórsson og Halldór Sverrisson 1994.
Skemmdirá lerki á Fljótsdalshéraði 1993. Skógræktarritið 1994: 75-77.
LimlsLus
rackjjo}
, uL,
l!M-VAI.L\
Þaö liggur í loftinu hvernig þú vilt skipuleggja
garðinn þinn.
BM Vallá býður þér ókeypis
ráðgjöf landslagsarkitekts til að útfæra
hugmyndir þínar, hvort sem þú ert að
skipuleggja nýjan garð eða gamlan.
Bókaðu tíma hjá BM Vallá í síma 585 5050.
Ráðgjöfin er veitt í lystihúsinu
í hjarta Fornalundar.
Söludeildin er opin
alla virka daga frá kl. 8 -18
og á laugardögum frá kl. 10 -16 í allt sumar.
Sumar í Fornalundi
Söludeild í Fornalundi
Breiðhöfða 3 Sími 585 5050 Fax 585 5051
sala@bmvalla.is
www.bmvalla.is
BM'VMIA
Fúsir til framkvæmda með þér
Sumar
hugmyndir
þurfa að komast niður á jörðina
38
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2003