Skógræktarritið - 15.05.2003, Qupperneq 60
Hér er merkilegur skóg-
arteigur, sem sá merki listamaður
og rithöfundur lochum Eggerts-
son græddi líklega mest á árun-
um 1950-1960. Um það hefi ég
ekki nákvæmar upplýsingar.
Þessarar skógargirðingar er ekki
getið í yfirliti Hákonar Bjarnason-
ar um skógargirðingar á íslandi í
Ársriti Skógræktarfélags íslands 1966.
lochum átti jörðina Skóga, en
þaðan var Eggert faðir hans,
bróðir séra Matthíasar skálds.
Hann ánafnaði Baháía-söfnuðin-
um á fslandi teiginn - og jörðina
- eftir sinn dag.
Hér var fyrir lágvaxið birkikjarr,
eins og sjá má á 5. mynd. Hér
gróðursetti lochum helstu trjá-
tegundir, sem völ var á: Sitka-
greni, rauðgreni, blágreni og sí-
beríulerki. Hið merkilegasta í
6. mynd ertekin 25. október 1989 undir
svipuðu siónarhorni og hin fimmta, og
sjást þar 1 jót ummerki eftir snjóþyngsiin.
5. mynd er tekin 24. september 1980, og er þá mikil litadýrð í reitnum.
7. mynd ertekin 19. ágúst 2002 og
sýnir nokkur trjánna á 6. mynd, sem
þessum skógarteig eru hins vegar
nokkrar fjallaþallir, sem líklega
hafa verið gróðursettar um 1960.
Þær hafa staðið sig mjög vel, sem
er satt að segja óvenjulegt, því að
vfðast misheppnaðist ræktun á
fjallaþöll. Nema á Hallormsstað,
Stálpastöðum, f Haukadal og
Tunguási f lökulsárhlíð eystra.
Veturinn 1988-1989 lagði mik-
inn snjó yfir reitinn í Skógum, reif
greinar af mörgum trjám og braut
stofna á vissu svæði í reitunum.
En jaðrar eru óskertir. Neðan frá
8. mynd er tekin líka i 9. ágúst 2002 og
sýnireina fjailaþöllina, sem hefir þol-
að snjóþyngslin betur en grenið. Þessi
er þrístofna. Gildasti stofninn er 10 cm
í þvermál í brjósthæð, og hæðin er um
5,5 m. í reitnum eru tværgisnar þyrp-
ingaraf þöilinni með alls 12 stofnum,
og auk þess eitt tré skammt frá kofan-
um, sem þarna stendur.
þjóðveginum sýnist reiturinn
nokkurn veginn heill.
Þallirnareru ákaflega frísklegar
í góðum vexti. Þær eru til vitnis
um það, hvílíkt hnoss væri að
geta haft þær f útivistarskógum
og trjágörðum.
eru að ná sér dálítið eftir útreiðina 13
árum áður.
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2003