Skógræktarritið - 15.05.2003, Síða 98
Þessu greinarkorni er ætlað að
miðla mönnum af takmarkaðri
reynslu áhugamanns af þessari
tegund.
Við Sigurður Eiríksson, trjá-
ræktaráhugamaður á Hvamms-
tanga, fengum veturinn 1990
nokkur fræ upprunnin úr
Kootenei, þjóðgarðinum í Mont-
ana, Bandaríkjunum.
í minn hlut komu sjö plöntur,
þrjár þeirra voru gróðursettar f
landi Miðhúsa í Biskupstungum,
en hinar í skógarreit |óns Svein-
björnssonar prófessors í Elliðaár-
dalnum í Reykjavík.
Plönturnar í Biskupstungunum
áttu erfitt uppdráttar í byrjun og
ræktunin fyrir norðan misfórst.
Ég gleymdi plöntunum í Elliðaár-
dalnum þar til í fyrrasumar er
þeirra var vitjað. Viti menn, þarna
blöstu við þrjú gullfalleg, iðja- .
græn og kröftug lerkitré, það
hæsta u.þ.b. 3 - 4 metra hátt. Þau
báru, eins og gull af eiri, af tveim
síberíulerkitrjám sem voru þar f
grenndinni, en þarrið á þeim var
gulleitt og gisið, hinar ótútleg-
ustu plöntur. Þessi risalerkitré
höfðu greinilega aldrei orðið fyrir
neinum áföllum. Ársvöxturinn
hin síðari ár hefur verið 30- 60
cm. Að vfsu ber að geta þess að
vandfundin eru betri skilyrði í
Reykjavík eins og háttar í þessum
reit. Plönturnar í Biskupstungun-
um hafa og tekið við sér en þær
hafa þó orðið fyrir kalskemmdum
og eru margstofna. Ég fylgdist
með þessum plöntum sl. haust,
þær búa sig frekar seint undir
veturinn og er því hætta á haust-
kali. Það má kannski draga úr
þeirri áhættu með því að planta
þeim 3 - 4 ára gömlum og vanda
vel til staðsetningar með tilliti til
frosthættu. Þær virðast þó ekki
láta plata sig eins og sfberfulerk-
ið í hlýindunum í vetur en brum
þeirra núna 1. apríl er komið mun
skemur á veg en hjá hinni síðar-
nefndu.
Þetta fikt okkar Sigurðar ætti
þó að verða öðrum hvatning til
að reyna þessa tegund, það
skyldi þó aldrei vera að hentugt
kvæmi risalerkis stæði sig betur
en síberíulerkið á sunnanverðu
landinu? Þá er forvitnilegt að vita
hvaða niðurstöður Þröstur fær úr
sinni tilraun, en eins og við alla
ræktun ríður á að finna það
kvæmi sem hentar best okkar
staðháttum.
96
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2003