Skógræktarritið - 15.05.2003, Side 103

Skógræktarritið - 15.05.2003, Side 103
MINNING ¥ Þórdís Magnúsdóttir F. 27. desember 1913. • D. 31. janúar 2002. Árið 1987 ánafnaði Þórdís Magnúsdóttir Skógrækt- arfélagi íslands jörðina Saura í Miðfirði eftir sinn dag, með þeirri kvöð að þar yrði ræktaður skógur. Þórdís lést 31. janúar á sfðasta ári. Jörðin Saurar er við þjóðveg nr. 1, rétt utan við þétt- býlið á Laugarbakka. Reisulegt fbúðarhúsið blasir við, beint af augum, þegar ekið er norður þrúna á Mið- fjarðará. Þórdís Magnúsdóttir fæddist á Saurum þann 27. desemberárið 1913. Foreldrar hennar voru Magnús Gíslason, f. 20. október 1869, d. 13. desember 1939, og Ingibjörg Signý Guðmundsdóttir, f. 3. júní 1886, d. 19. júlf 1952. Bræður Þórdísar voru Guðmundur, f. 7. janúar 1907, d. 22. október 1924, og Gísli, f. 26. des- ember 1908, d. 9. apríl 1987. Þórdís var ógift og barn- laus. Þórdís, eða Dísa á S.aurum eins og hún var jafnan nefnd, var Vestur-Húnvetningur í húð og hár eins og hún sagði sjálf. Hún ólst upp og bjó á Saurum með foreldrum sínum og Gísla bróður sfnum fram á fimmta áratuginn en þá tóku þau systkinin við búsfor- ráðum af foreldrum sínum. Bjuggu þau félagsbúi á Saurum allt þar til Gísli lést 1987 en eftir það bjó Þór- dís þar ein uns heilsan bilaði sumarið 2000 er hún flutti á Heilbrigðisstofnunina á Hvammstanga. Samferðamenn Þórdísar virðast nokkuð einhuga um helstu persónueigindir hennar. Hún var vel gefin og minnug, gædd léttri lund og gestrisin. Hún hafði ákveðnar skoðanir, sem hún lá ekkert á, var hreinskiptin og vildi hvergi vamm sitt vita. Hún hafði yndi af tónlist og lék á harmoniku á yngri árum. Hún söng f kirkjukór Melstaðarkirkju um áratugaskeið og hafði einnig mjög gaman af að dansa gömlu dansana. Sveitinni sinni unni hún mjög. í því sambandi er gaman að vitna í minningargrein sem einn sveitungi hennar skrifaði til hennar: „Til marks um hug Dísu til sveitarinnar ánafnaði hún Skógrækt- arfélagi íslands jörðina sína svo þar mætti rækta skóg til sveitarprýði og komandi kynslóðum til yndis og ánægju". Skógrækt var hafin á jörðinni fyrir nokkrum árum og er eftirtektarvert að sjá góðan árangur hennar en Skógræktarfélag V-Húnvetninga hefur annast ræktun- ina. Sérstaklega hefur birki vaxið vel og eru hæstu tré nú um 2 m á hæð. Útbúið hefur verið bílastæði við þjóðveginn og skógurinn merktur „Dísulundur". Unnið er að gerð skógræktarskipulags fyrir jörðina og mun Skógræktarfélag V-Húnvetninga vinna áfram að skógrækt á jörðinni í samvinnu við Skógræktarfé- lag fslands. í framtíðinni mun vöxtulegur skógur vonandi vaxa sem víðast á Saurum og verða þannig verðugur minn- isvarði þess stórhugar sem fylgdi gjöf Þórdfsar Magn- úsdóttur til Skógræktarfélags íslands. Blessuð sé minning Þórdísar Magnúsdóttur. Magnús jóhannesson SKÓGRÆKTARRITIÐ 2003 101
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.