Skógræktarritið - 15.05.2005, Side 17

Skógræktarritið - 15.05.2005, Side 17
þetta mjög farsælt verkefni. Það er lfka svo skemmtilegt að stúlkur og strákar hafa komið til mín og sagt: Þú hefur gefið mér tré! Það er gaman að skynja að börnin átta sig á þvf að mitt nafn tengist þessu verkefni. Svona minnis- merki finnst mér að maður eigi að skilja eftir. Þau eru ekki sýni- leg nema að ákveðnu marki. Þau eru þarna f jörðinni. Þetta eru minnismerki um kynslóðina sem gróðursetti trén. Á erlendri grund Ég varð víða þekkt fyrir þessi þrjú tré. Alls staðar þar sem ég kom var ég beðin um að gróðursetja. í Minneapolis vaxa fallegar eikur sem ég gróðursetti árið 1982. Ég heimsótti þær fyrir nokkrum árum. Búið var að bæta og stækka svæðið og vaxinn upp failegur lundur. í Japan hef ég gróðursett tré, á írlandi og á fleiri, fleiri stöðum. Það virðast allir vita sem eitthvað þekkja til að ég er konan með trén og börnin! Af nútíð og framtíð íslendingar eru upp til hópa hrifnæmir og þeir vilja vera eins og nágranninn. Þetta sést vel í öllum sumar- húsabúskapnum. Ég sé nú öðru hvoru í blaðagreinum, þar sem menn eru spurðir um tómstunda- gaman, nokkuð sem ekki sást áður, að menn nefna það að gróðursetja tré. Taktu eftir, hafa skógrækt sem tómstundaiðju! Lengi vel nefndu menn oftast golf eða hestamennsku en nú er þetta farið að sjást á prenti oftar og oftar. Þetta finnst mér alveg meiri háttar. Við verðum þó að átta okkur á þvf að skógrækt er ekki alls staðar við hæfi en engin ástæða er til árekstra ef skynsemi er beitt því nóg er landrýmið. íslensk náttúra með öllum sínum sér- kennum verður að fá að njóta sín. Við verðum að varðveita einkenni fslands. En við verðum ekki síður að vinna að skógrækt. Þar eru mér svo ofarlega f huga öll örnefnin sem benda á horfna skóga. Þar sem ekki er í dag stingandi strá eru nöfn sem benda á að þar hafi verið skógur. ÍÁrnessýslu, heimasveit minni, eins og ég kalla hana, þar sem ég var í mörg ár, er urmull nafna sem benda til skóga, t.d. Geldingaholt, Háholt, Glóra. Þetta hefur náttúrlega verið allt þakið skógi allt frá Þjórsárdal niður eftir öllum sveitum. En orðið holt er skylt orðinu Holz í þýsku sem þýðir skógur. „Oft er f holti heyrandi nær’’ er gamalt orðatiltæki á íslensku sem auðvitað hefur orðið til f skógi. Þetta getur verið okkur vís- bending um að koma upp skógi en við þurfum líka að leggja á- herslu á grisjun skóganna og leyfa skóginum að endurnýja sig á sama hátt og maðurinn. Best er það ef skógurinn nær að sá sér sem mest sjálfur. Þá er það auð- vitað stórt verkefni sem blasir við að takast á við það að halda blessaðri sauðkindinni frá ný- ræktinni. Án þess að ég sé á neinn hátt að hallmæla henni. Kynslóðirnar sem komust af lifðu beinlínis af sauðkindinni. Ég sé skóga og skjól sem vfðast á íslandi vegna þess að það er okkar framlag til hreins- unar andrúmsloftsins. Við eigum að vera hreykin af hverju lauf- blaði sem sprettur. Það er örlítil gjöf en mikilvæg í viðleitninni við að bæta umhverfið í heiminum. Myndirtók höfundur, nema annað sé tekið fram.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.