Skógræktarritið - 15.05.2005, Síða 21

Skógræktarritið - 15.05.2005, Síða 21
INNGANGUR Sýn samfélagsins á skógrækt hefur tekið miklum breytingum á síðustu áratugum um allan heim. f augum almennings er skógurinn nú orðinn miklu meira en ein- ungis uppspretta hráefnis. Þessar breytingar hafa átt sér stað meðal annars vegna breyt- inga f landbúnaði, aukinnar um- hverfisvitundar fólks og breytinga á lffsstíl þar sem meiri tími gefst til að stunda útivist. Hlutverk skógarins eru sífellt að verða fleiri. Skógum er nú ætlað að uppfylla þörf fyrir bæði um- hverfis- og félagslega þjónustu auk efnahagslegra þátta. Þessar breytingar hafa haft umtalsverð ahrif á skógræktargeirann í heild sinni.1 Félagsfræði og vistfræði hafa því auknu hlutverki að gegna í starfi skógræktenda, þar sem skipulagning og umhirða skógar- ins snýst ekki lengur alfarið um trén sjálf heldur um samverkan efnahags, umhverfis, samfélags og skógarins.2 Sem skref í átt til þetri skilnings á samspili þessara þátta voru við- horf almennings til skógræktar könnuð og var það í fyrsta sinn sem slík skoðanakönnun fer fram hér á landi. Ætlunin er að nota. þessar niðurstöður síðar sem viðmið um hvernig viðhorf lands- manna breytast með tímanum og með breyttum aðferðum og áherslum í skógrækt. Viðhorfs- kannanir gefa einnig vísbend- ingar um þætti sem rannsaka þarf nánar. EFNI OG AÐFERÐIR IMG Gallup vann viðhorfskönn- unina fyrir Skógrækt rfkisins, Mógilsá, dagana 20. ágúst til 22. septemþer 2004. Náið samstarf var á milli sérfræðinga IMG Gallup og Skógræktar ríkisins við hönnun könnunarinnar til að tryggja að hún yrði sem mark- tækust. Könnunin átti einnig að varpa ljósi á mismunandi viðhorf aðspurðra eftir þjóðfélagsstöðu þeirra og voru svörin flokkuð eftir kyni, aldri, búsetu (Reykjavík, nágrannasveitarfélög Reykjavfkur og önnur sveitarfélög) fjölskyldu- tekjum, menntun, aðgangi að sumarbústað/jörð og að lokum búsetu í þéttbýli eða dreifbýli. Hringt var í 2.000 íslendinga á aldrinum 18-75 ára og þeir spurðir 39 spurninga. Könnuð var afstaða þeirra til skóga og skógræktar almennt og einstakra atriða er varða skógrækt sem orðið hafa uppsprettur deilna, þar sem ýmsum fullyrðingum hefur verið haldið fram án þekkingar á afstöðu almennings. Einnig var spurt um nýtingu landsmanna á skógum til útivistar og þekkingu þeirra á skógrækt og trjátegundum. Allir SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.