Skógræktarritið - 15.05.2005, Síða 32
fossar og flúðir, litbrigðin skörp. Mæli með því að skoða
Kiðagilið ef fólk er á ferð um Sprengisand, en norðurmörk
hans eru við Kiðagil. Fór ég síðan niður með Kiðagilinu,
yfir Kiðagilsána neðan við gilið. Hún er ekki farartálmi
síðsumars. Gróður er frekar lftill með Kiðagilinu, heita
þar Dældir að norðan en að sunnan Áfangatorfur. Þar eru
engar torfur lengur.
Þegar komið er yfir ána er alger sandauðn alla leið
suður að Ytra-Fljótsgili. Gott útsýni er yfir Fljótið og upp
á Hraunárdal, þar eru nokkrar torfur austan í dalnum og
kofi sem heitir Slakki, eins og hlíðin sem hann stendur í.
Það er ótrúlega sérstakt og fallegt að koma í Ytra-
Fljótsgilið úrauðninni norðanvið, gróðurinn er
alveg ótrúlegur, þarna er skógarbotnsgróður: vfðir,
birki, einir og reyniviður. Fyrstu árin sem ég kom
þarna fann ég eina reyniviðarplöntu, en sumarið
2003 fann ég aðra. Kjarrið er víða 1 - 2,5 m á hæð
og er í hvömmum þar sem ekki er eins bratt að
Fljótinu. Reyniberin voru brún að lit í endaðan
ágúst. Birkið var með einhver óþrif eins og víðar á
Norðurlandi þetta sumar. Þarna var mikið af
hrútaberjum og þau voru rauð og fullþroskuð.
Einirinn var með mikið af berjum, eins og í miðri
sveit. Loðvíðir er þarna stórvaxinn 2-3 m á lengd.
Ég hef heyrt í skógarþresti þarna innfrá og þarna er
mikið heiðargæsavarp og mörg hreiður virðast
notuð ár eftir ár. Ytra-Fljótsgilið er einn af þekktum
varpstöðum snæuglunnar ef hún verpir hér enn. Efri mynd: Víðirca. 2,5 til 3 maS hœS. Neðri mynd: Höfundur viS
Hlíðin norðan við Ytra Fljótsgilið að vestan, norðan nyndarlega reynihríslu.
við Kiðagil, heitir Smiðjuskógur. Þar er enginn
skógur, engin hrísla lengur, heldur berir, uppblásnir
melar, algerauðn. Þarna var skógur 1712 þegar
(arðabókin var gerð, en enginn um 1850. Norðan við
Smiðjuskóg eru smiðjuleifar og stórir gjallhaugar,
merki um umtalsverða járnvinnslu. Orri Vésteinsson
var þarna við fornleifaskráningu sumarið 2004 og
taldi hann leifarnar vera frá því fyrir 1100. Smiðju-
skógur hefur verið nokkuð stórvaxinn því það er ekki
hægt að gera til kola úr hrísi og spreki. Einnig hefur
hann náð inn í Fljótsgil og mögulega Fljótsdal.
Svona gróður myndast ekki svo langt frá svipuðu
gróðurfari, næsta birki er í ca 13 km fjarlægð, örfáar
hríslur 1 m háar, 5-6 talsins. Þar norðan við eru
nokkrir lágvaxnir runnar í Hrafnabjargahlfð í 30 km
fjarlægð. Einnig er birki á íshólsdal og Mjóadal enn
lengra frá Ytra-Fljótsgili. Það er í senn ánægjulegt og
fróðlegt að skoða bæði gilin, hið landsþekkta Kiðagil
og óþekkta Ytra-Fljótsgil.
Efri mynd: Vöxtulegur einirunni. NeSri mynd: Runninn er morandi af
einiberfum.
30
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005