Skógræktarritið - 15.05.2005, Page 83

Skógræktarritið - 15.05.2005, Page 83
stólparót en út frá henni greinast margar ffnni hliðarrætur. Rót holtasóleyjar hefur stundum verið nefnd þjófarót en sam- kvæmt Þjóðsögum Jóns Árna- sonar var hægt að nota hana með nokkrum skilyrðum, sem erfitt var að uppfylla, til að draga til sín peninga. Útbreiðsla holtasóleyjar í jarðsögunni Eldra og Yngra Dryas eru jarð- söguskeið sem kennd eru við holtasóley þar sem hún var áberandi í gróðurfari á norður- hveli á þessum jarðsöguskeiðum. Yngra Dryas markar upphaf nútíma og lok ísaldar, aðallega í Vestur-Evrópu fyrir um 10.000 árum. Yngra Dryas- skeiðið hófst fyrir um 12.900 árum og lauk fyrir um 11.500 árum og nær þvf yfir tiltölulega stuttan tíma í jarð- sögunni. í lok ísaldar fór hitastig smátt og smátt hækkandi á norðurhveli jarðar og ísaldar- jöklarnir hörfuðu. Á Yngra Dryas lækkaði hins vegar meðalárshiti mjög skyndilega. Talið er að meðalárshiti á Grænlandi hafi verið um 15°C lægri en hann er í dag og í Evrópu er talið að meðal- árshiti hafi verið 5°C lægri. Jöklar mynduðust á hálendi en á lág- lendi hörfuðu hitakærar tegundir lengra suður á bóginn á meðan kuldaþolnari tegundir urðu mjög útbreiddar í Evrópu, t.d. í Suður- Englandi og í Danmörku, þar á meðal holtasóley sem þetta skeið dregur nafn sitt af. Þegar ísaldarjökullinn breiddi úr sér á norðurhveli á síðasta kuldaskeiði ísaldar brotnuðu áður samfelld gróðursvæði upp í lítil einangruð svæði þar sem aðeins harðgerðustu plöntur áttu hugsanlega möguleika á að lifa af. Á þessum svæðum héldu tegundir áfram að þróast. Þegar tók að hlýna aftur gátu þessi 2. mynd. Vid aldinþroskun myndast hárbrúskur í fyrstu snúinn en síðan vinst ofan af snúningnum og hárbrúskurinn slendur út íloftið eins og hárprúð brúða í roki. Kallast þá holtasóleyin hárbrúða eða hármey. Ljðsmynd: jo'hann Óli Hilmarsson. Hybrlds between D. octopetala and 0. integrifolla Fosall, interglacfal, pleniglacial and late-glacial 3. mynd. Holtasóley hefur mikla útbreiðslu á norðurhveli. Heilu línurnar afmarka útbreiðslusvæði D. octopetala sem er sú tegund sem hér vex og skástrikuð svæði eru þau svæði þar sem hún er atgengust. „Greiðu"línan afmarkar útbreiðslusvæði D. integrifolia. Dökku punktarnir eru stakir fundarstaðir D. octopetala og D. integrifolia innan síns útbreiðslusvœðis. Opnir punktar eru fundarstaðir holtasóleyjastofna þar sem hefur orðið kynbiöndun milli D. octopetala og D. integrifolia. Táknið + merkir staði þar sem plöntuleifar fsleingervingar) eða frjókorn þessara tegunda hafa fundist í jarðvegi en þær vaxa ekki á þeim slóðum í dag. Heimild: Hultén og Fries 1986. SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005 81
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.