Skógræktarritið - 15.05.2005, Qupperneq 84
einangruðu gróðursvæði verið
uppspretta fyrir útbreiðslu
margra plöntutegunda. Stofnar
tegunda sem höfðu verið að-
skildir í lengri tfma og náð að
þróast og aðlagast breyttum
umhverfisaðstæðum hver á sínu
svæði náðu saman aftur og
stundum varð blöndun á milli
þeirra ásamt fjölföldun á litn-
ingum, sem gat leitt til myndunar
nýrrar tegundar.
Samanburðarrannsóknir á
erfðabreytileika holtasóleyjar (D.
octopetala) og hinni náskyldu D.
integrifolia hafa varpað ljósi á
útbreiðsluleiðir þessara tegunda
eftir fsöld. Rannsóknir benda til
þess að flóra Svalbarða kom
aðallega frá N-Skandinavíu
en þaðan dreifðist hún til NA-
Grænlands. íslenska flóran kom
frá SV-Skandinavfu og Skotlandi
og þaðan barst hún áfram til
Suður-og Austur-Grænlands.
Meiri breytileiki var milli rann-
sóknasvæða á Grænlandi, Sval-
barða, íslandi og f Svíþjóð en á
milli þessara tveggja náskyldu
tegunda. Mestur breytileiki í
stofnum holtasóleyjar var á
Austur-Grænlandi en þar er
kynblöndun milli tegundanna
tveggja mest.
Útbreiðsla á norðurhveli í dag
Holtasóley er það sem kallast að
vera sirkumpólar, þ.e. útbreiðsla
hennar á norðurhveli jarðar nær
hringinn f kringum Norðurpólinn.
Eins og sést á útbreiðslukortinu
(3. mynd) eru þetta aðallega D.
octopetala og D. integrifolia. Sú teg-
und sem hér vex, D. octopetala er
hánorræn. Útbreiðslusvæði
hennar er á heimskautasvæðum
og í fjalllendi í Evrópu, Asíu svo
og á vesturströnd Norður-
Ameríku. í Evrópu er hún auk
íslands algeng í Noregi en vex
einnig annars staðar í Skandi-
navíu, á N-Bretlandi og á írlandi.
Sunnar í Evrópu eru hún bundin
við háfjallasvæði eins og Alpana.
Aðalútbreiðslusvæði D. integrifolia
er í Kanada og vestur og norður-
hluta Grænlands.
Kjörsvæði og útbreiðsla á
íslandi
Hér á landi vex holtasóley á
melakollum og á þúfnakollum í
þurrum móum þarsem ertiltölu-
lega snjólétt. Hún er oft á meðal
fyrstu landnema á melum. Hún
er algeng um allt land bæði á
láglendi og hálendi. Hún blóm-
strartiltölulega snemma eða f
maf-júnf.
Æxlunarvistfræði holtasóleyjar
Holtasóley myndar blómvísa
árinu fyrir blómgun og þar sem
blöðin eru að mestu sígræn getur
hún nýtt sér fyrstu vorhlýindi til
að blómgast snemma sumars
árið á eftir. Holtasóley er frævuð
af skordýrum og algengast er að
blómin séu vfxlfrjóvguð, þ.e.
frjóvgun verður á milli blóma
mismunandi einstaklinga þó að
sjálfsfrjóvgun sé einnig þekkt, en
þá verður frjóvgun innan sama
blóms. Holtasóley fjölgar sér
fyrst og fremst með fræi sem
dreifist með vindi og hvert blóm
myndar um það bil 50-60 fræ en
fjöldi og þyngd fræja er líklega
háð umhverfisaðstæðum eins og
hitastigi. Það getur þvf skipt máli
fyrir norræna tegund eins og
holtasóley að vera ljósleitin en
slfkar plöntur geta teygt sig mót
sólu og hafa þróað með sér
hæfni til að virkja ljós og hita-
geislun frá sólu. Blóm holtasól-
eyjarinnar er skálarlaga líkt og
hjá mörgum ljósleitum plöntu-
tegundum. Blómin snúa ávallt á
mót sólu þannig að hitastigið í
blómbikarnum getur orðið allt að
8°C heitara en utan hans. Hátt
hitastig í blómbikarnum laðar
einnig að skordýr sem sækja í
hlýjuna og fyrir þær jurtir sem
treysta á skordýrafrævun hefur
þetta mikla þýðingu. Frædreifing
verður síðan um miðjan ágúst.
Holtasóley getur náð töluvert
háum aldri. f rannsókn Lilju
Karlsdóttur (2004) sem var hluti
af meistaranámi hennar og kom
m.a. inn á stofnsamsetningu
holtasóleyjar, reyndist elsta
plantan vera 37 ára og líklega
geta plöntur holtasóleyjar náð
enn hærri aldri. Meðalársvöxtur
var um 2 cm2/ári. Rannsóknir
Lilju benda einnig til þess að
holtasóley þurfi að hafa náð
tilteknum aldri eða stærð áður en
hún blómgast í fyrsta sinn en
yngstu blómstrandi holtasól-
eyjarplöntur voru 7 ára gamlar.
Holtasóley sem hluti af vistkerfi
íslands
Rjúpan er grasæta og rjúpna-
laufið er mikilvæg fæða hennar. í
fyrstu alast ungar rjúpunnar á
skordýrum og æxlikornum korn-
súru en seinna þegar vetrar sækir
rjúpan meira niður á láglendið og
þá verður rjúpnalauf auk fjall-
drapa og birkis drjúgur hluti
fæðunnar.
Fleiri grasbftar sækja í blóm
og blöð holtasóleyjarinnar, t.d.
sauðfé, en einnig er rjúpnalaufið
mikilvæg fæða hreindýra, ásamt
grasvíði og fleiri háplöntutegund-
um auk fléttna.
Maðurinn borðar bæði rjúpur,
sem mörgum finnst ómissandi
jólamatur og hreindýrakjöt sem
einnig er að ryðja sér til rúms
sem hátíðamatur og segja má að
rjúpnalaufið eigi þátt í
bragðgæðum kjötsins.
Notkun
Holtasóley var nýtt til að drýgja
og bragðbæta mat, svo og sem
lækningaplanta, þó líklega hafi
það ekki verið í miklum mæli.
Hægt er að nota alla hluta
82
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005