Skógræktarritið - 15.10.2019, Page 56
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201954
18. október – Barcelona til Jaca
Við yfirgáfum hótel í Barcelona að loknum
morgunverði og stefndum í norður. Hér
var kominn nýr bílstjóri sem var með
okkur allan tímann, Oscar Moral, liðugur
náungi og hress og ók vagninum þægilega.
Stefnan var tekin á klaustrið Montserrat,
víðfrægan byggingarkjarna með mikilfeng-
legu landslagi. Hér var þröng á þingi
enda ferðamönnum daglega landað þar í
þúsundum talið. Við sigldum um grösugar
sveitir og fram undan voru tindar sem
bar við himinn og þeirra hæstur er Sant
Jeroni, 1.240 m. Fjöllin eru mynduð
úr gömlum sjávarbotni þar sem þrifust
frumdýr með stoðkerfi úr kalkskeljum sem
hlóðust upp fyrir milljónum ára. Sumir
úr okkar hóp fóru í kláfum eins langt og
komist var að efstu toppum meðan aðrir
dvöldu í þorpskjarnanum þar sem er að
finna ýmislegt fróðlegt um sögu og tilurð
staðarins. Útsýni er mikilfenglegt til allra
átta og byggingarnar sem eru gleyptar í
kalk-klettana líta út fyrir að vera hluti
af landslaginu. Hér hefur Benediktusar-
reglan verið starfrækt í fleiri hundruð
ár. Umhverfið á vart sinn líka þar sem
landslagið er stórbrotið en elstu byggingar
má rekja allt til 9. aldar eða um það bil
þegar Ísland byggðist.
Gróðurfar í hlíðunum ber einkenni
Miðjarðarhafsloftslags en með tímanum
hafa einnig síendurteknir skógareldar
mótað gróðurfarið. Þar sem áður uxu
víðfeðmir furuskógar (Pinus halepensis
og Pinus nigra) er nú að finna runna og
lauftré sem smám saman hafa gjörbreytt
ásýnd svæðisins. Hér vaxa samt fjölmargar
trjátegundir, m.a. sjö eikartegundir, þrjár
hlyntegundir en alls er að finna allt að 30
Byggingarkjarni klaustursins í Montserrat. Mynd: BJ