Skák


Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 3

Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 3
&Ö S K A K w Utgefandi: Skáksamband Islands Ritstjórn: Þráinn Guðmundsson Askell Orn Kárason Bragi Kristjánsson Umbrot: Áslaug Jósepsdóttir aslaug@bive.is Framkvæmdastjóri: Ásdís Bragadóttir Auglýsingar: Markaðsmenn Utanáskrift: Skáksamband Islands Póstbólf 8354 128 Reykjavík tölvupóstur: slks@simnet.is Sími: 568 9141■ Fax: 568 9116 Efni m.a. Skákþing Norðurlanda í Finnlandi Unglingalandsmótið í Vík Heimsmeistarmót ungmenna Skákhátíð í Háskólanunt í Reykjavík Rabb Það er óvenjuerfitt að þessu sinni að líta til baka til liðins sumars og vera ánægður með afrakstur skákmeistara okkar, þeirra sem eiga að halda uppi merkinu. Við sem fýlgjumst með framvindunni úr fjarlægð og höfum mik- inn metnað fyrir hönd íslenskrar skákar höfum satt að segja ekki haft ástæðu til að gleðjast, svo slök er frammistaðan. Metnaðurinn og baráttuandinn sem einkenndi til skamms tíma fremstu skákmenn okkar virðist farinn veg allrar veraldar, því miður. Við höfum dregist verulega aftur úr frændum okkar á Norðurlöndunum eins og fram kom svo nöturlega á Evrópumóti landsliða í sumar - að ekki sé talað um t.d. þjóðir Suður-Evrópu, sem yfirleitt máttu lúta í gras fyrir okkar sveitum. Já, oldtar liðsmenn voru t.d. himinsælir og glaðir á nefndu Evrópumóti með að tapa bara 1-3 móti Rússum! Það var að vísu ekki svo slæmt miðað við margt annað, en sýnir samt skaplurðuhátt og rangan liðsanda - menn eiga aldrei að gleðjast yfir tapi, heldur bölva hátt og í hljóði, hleypa í sig hörku og þjappa sér saman! Já það er meira en lítið bogið við frammistöðu sumarsins, og ekki bætti Norðurlandamótið úr. Hvað er eiginlega á seyði í hinum norræna skáltheimi? Einu sinni þótti nokkur heiður í því að eiga Skákmeistara Norðurlanda og þjóðirnar sendu sína sterkustu menn til leiks. Mér skilst að stigahæstu virku skákmeistarar okkar hafi eklei nennt til Finn- lands, þar sem Norðurlandamótið fór fram, nú - eða voru þeir þreyttir? Hið sama virðist uppi á tengingnum hjá frændþjóðunum. Enginn úr hópi danskra stórmeistara lét sjá sig austur þar, og þeir norsku voru víst “þreyttir” líka. Aðeins Svíar héldu uppi standard á þessu forna Skákþingi þar sem frændurnir á Norðurlöndum hafa marga hildi háð í gegnum tíðina. Islensku keppendurnir í opna flokltnum - “the main tournament” eins og hann nefndist á hinum finnska vef, stóðu sig vægast sagt illa - og nóg um það. Einn var þó ljós punktur á þessu móti. Lenka Ptacnikova sigraði í kvennaflokki og færði okkur langþráðan sigur á alþjóðlegu skákmóti, en þær Guðlaug Þorsteinsdóttir (1975 - '77 og '79) og Sigurlaug Friðþjófs- dóttir (1981) hafa áður orðið Norðurlandameistarar í skák. Það var tími til kominn að hampa þessum titli aftur. Til hamingju, Lenka! A þingi Skáksambands Norðurlanda í Finnlandi var svo forysta þessara hálfdauðu samtaka falin forseta S.I., Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, sem þýð- ir væntanlega að næsta Norðurlandamót verður haldið á íslandi að tveimur árum liðnum. Hvað skal segja um þessa vegtyllu Guðfríðar Lilju - á að óska henni til hamingju? Eg held ekki, - en verkefnið að reyna að blása einhverju lífi í þessi samtök og endurvekja virðingu skákmanna fyrir þeim, er vissu- lega verðugt og þarfnast þess eldhuga sem hún hefur oft sýnt. Seinustu áratugina má segja að það eina sem gert var af reisn af Skáksam- bandi Norðurlanda hafi verið runnið undan rifjum Einars S. Einarssonar. Kannski tekst íslendingi aftur að blása lífi í hinar norrænu glæður! Þrdinn Guðmundsson S K A K 99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.