Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 38
Við vorum spennt að sjá hvern-
ig Degi myndi ganga, eftir frá-
bært gengi í fyrstu tveimur um-
ferðunum mætti hann nú enn
mjög sterkum andstæðingi, Ge-
org Meier frá Þýskalandi, með
2438 Elo-stig. Eftir að hafa
fengið mjög slæma stöðu út úr
byrjuninni sýndi Dagur enn
styrk sinn og náði jafntefli, sem
verður að teljast mjög gott mið-
að við stöðuna á tímabili. Dagur
er því meðal efstu manna, hefur
2,3 v. af 3. Hjörvar hélt áfram að
vinna, og nú lá Þjóðverji með
1980 stig í valnum. Hjörvar hef-
ur þá tvo v. af þrem. Jóhanna
gerði jafntefli við stelpu frá Sam-
einuðu arabísku furstadæmun-
um, og Atli vann sína fyrstu
skák, þannig að nú eru allir ís-
lensku þátttakendurnir komnir
á blað. Hallgerður gerði jafntefli
við ítalska stelpu, en Elsa, Sverr-
ir og Daði töpuðu í dag. And-
stæðingur Sverris var líka mjög
stigahár, Georgíustrákur með
2243 Elo-stig.
Afrakstur dagsins var því 3,3 v.
hjá íslensku krökkunum, sem
verður að teljast nokkuð gott
miðað við styrk andstæðing-
anna.
Dagur 5, föstudagur 22. júlí
Um hádegisbilið fór ég með
Degi og Atla í LeClerc, og á-
stæðan var athyglisverð: Dagur
gat ekki farið á skákstað nema
hafa með sér ákveðna tegund af
vatni. Þegar ég spurði hann nán-
ar út í þetta kom í ljós að vatnið
var bara hluti af ákveðinni
rútínu sem hann þarf að fara eft-
ir til að vera rétt stefndur í skák-
inni. Fyrir hverja umferð á mót-
inu þarf hann að hafa tvær flösk-
ur af Evian-vatni, tvær fernur af
Wesergold multivitamin-safa og
tvo pakka af ávaxtamentosi, allt í
bakpoka. Einnig þarf hann að
134
S K A K