Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 54
Heimsmeistaramót skákforrita
var sett 13. ágúst, og flutti Frið- j
rik Olafsson, stórmeistari, setn- j
ingarræðuna.
14. ágúst var haldið afmælis-
fjöltefli Friðriks Ólafssonar, j
fyrsta stórmeistara Islendinga, j
en hann varð sjötugur í byrjun j
ársins. Andstæðingar Friðriks j
voru 25 og eiga allir stórafmæli á
árinu, en þó nutu keppendur
undir tíu ára aldri sérstakrar
undanþágu í þeim efnum. Ald- j
ursbilið var 6-90 ár og var elsti
keppandinn Anna Þorsteins-
dóttir. Friðrik vann 19 skákir, en
gerði sex jafntefli, við Steingrím
J. Sigfússon, alþingismann,
feðgana, Grétar Áss Sigurðsson j
og Sigurð Áss Grétarsson, Lárus j
Ara Knútsson, Birgi Aðalsteins-
son og höfund þessarar greinar.
Fjölteflið vakti mikla athygli og :
var skemmtilegur þáttur í skák- j
hátíðinni.
18. ágúst var Borgarskákmótið
haldið í Háskólanum í Reykja- j
vík. 48 keppendur tefldu 7 um- j
ferðir, skv. Monradkerfinu.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarstjóri, setti mótið og lék
fyrsta leikinn fyrir eina kvenna- J
stórmeistara íslands, Lenku
Ptacnikovu, gegn Tinnu Krist-
ínu Finnbogadóttur.
Mótið var stofnanamót og sigur-
vegari varð RST-net, en fyrir j
það tefldi Arnar Gunnarsson,
alþjóðlegur meistari, og hlaut
61/2 v. af 7 mögulegum. Næstir
komu í 2.-5. sæti, íslandspóstur
(Lenka), Opin kerfi (Hjörvar j
Steinn Grétarsson), Sorpa (Stef-
Afmælisjjöltefli: Friðrik Ólafsson, nýorðinn sjötugur tefldi viðýmsa „stórafmœlishafa “!
án Freyr Guðmundsson) og
Landsbanki íslands (Bragi Hall-
dórsson), með 51/2 v. hvert. 6.-8.
Viskulind heimspekiskóli
(Hrannar Baldursson), MP Fjár-
festingarbanki (Arngrímur
Gunnhallsson) og Ólís (Björn
Freyr Björnsson), 5 v. hver.
Enn einn viðburðurinn á hátíð-
inni var blindskákaeinvígi al-
þjóðlega meistarans, Arnar
Gunnarssonar, og FIDE-meist-
arans, Róberts Harðarsonar, en
það var teflt á lokadegi mótsins.
Róbert reyndist hafa minni þörf
fyrir að hafa borðið og mennina
fyrir augunum og vann 2-0.
I Háskólanum í Reykjavík var
boðið upp á skákskýringar fyrir
áhorfendur alla daga hátíðarinn-
ar, þar sem stórmeistaranir,
Helgi Ass Grétarsson, Helgi
Ólafsson, Jóhann Hjartarson,
Jón L. Árnason og Þröstur Þór-
hallsson, auk höfundar þessa
pistils, útskýrðu gang mála, og
stemningin var góð.
Hátíðinni lauk svo með sameig-
inlegri verðlaunaafhendingu fyr-
ir bæði mótin. Guðfríður Lilja
afhenti verðlaun fyrir íslands-
þingið og naut við það aðstoðar
Arna Emilssonar, Landsbanka.
Dr. Yngvi Björnsson afhenti
verðlaunin fyrir Heimsmeistara-
mót töivuforrita.
Þar með lauk mjög skemmtilegri
og óvenjulega fjölbreytilegri
skákhátíð. Það er mál manna, að
Háskólinn í Reykjavík hafi reynst
hinn besti skákstaður og vonandi
verður framhald á þeirri góðu
samvinnu Skáksambands íslands
og forráðamanna skólans um
skákmótahald, sem þarna tókst.
150
S K A K