Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 43
Af erlendui^+wfy
Topalov sigraði á Mtel
Masters 2005
Dagana 11.-25. maí var haldið
geysisterkt skákmót í Sofia í j
Búlgaríu. Mobiltel, stærsta síma- j
fyrirtæki landsins, og Kaissa j
Chess Management, umboðs- !
skrifstofa Silvio Danailovs, j
framkvæmdastjóra Topalovs, j
langsterkasta skákmanns lands- j
ins, stóðu fyrir mótinu. Mótið !
var liður í hátíðahöldum í tilefni
af 10 ára afmæli Mobiltel.
Keppendur voru sex stórmeistar- j
ar í fremstu röð, sem tefldu tvö- 1
falda umferð. Mótið var í 20. |
styrkleikaflokki FIDE (meðal-
stig 2747) og mótshaldarar ætl- j
uðust til þess, að keppendur
legðu sig alla í baráttuna. Settar j
voru reglur, sem bönnuðu kepp- j
endum að semja um jafntefli, j
nema í þremur dlvikum, og ein-
ungis með samþykki skákdóm-
ara:
A) Þráskák B) Þrisvar sama stað- j
an C) Fræðileg jafnteflisstaða. j
Ráðgjafi dómaranna var ekki af !
verri endanum, sjálfur Zurab
Azmajparashvílí, stórmeistari frá
Georgíu.
Úrslitin urðu heimamönnum
til mikillar ánægju:
1. Topalov (2778), 61/2 v. af 10
mögulegum; 2. Anand (2785,
Indlandi), 51 /2 v; 3.-4. Júdít j
Polgar (2732, Ungverjalandi) og
Ponomarjov (2695, Ukraínu), 5 j
v. hvort; 5.-6. Kramnik (2753,
Rússlandi) og Adams (2737,
Englandi), 4 v. hvor.
ívantsjúk sigraði með
yfirburðum á Minningar-
móti Capablanca 2005
Minningarmót um fyrrverandi
heimsmeistara, Jose Raoul :
Capablanca, hið fertugasta í röð-
inni, var teflt í Havanna á Kúbu, j
dagana 5.-20. maí s.l. Mótið var j
í 1 5. styrkleikaflokki FIDE, með
2619 meðalstig.
Úkraínski snillingurinn, Vassilíj j
Ivantsjúk, rúllaði mótinu upp
með fáheyrðum yfirburðum:
1. ívantsjúk, sm (2739), 902 v.
af 12 mögulegum; 2. Bruzon, j
sm (2669, Kúbu), 7 v; 3.-4.
Dominguez, sm (2658, Kúbu) j
og Delgado, sm (2567, Kúbu), 6
v. hvor; 5. Jobava, sm (2637,
Georgíu), 51/2 v; 6. Nogueiras, j
sm (2533, Kúbu), 5 v; 7. Arenci-
bia, sm (2530, Kúbu), 3 v.
Bologan og Sokolov
deildu sigrinum á Bosna
2005 í Sarajevo
Hið árlega Bosna ofurstórmeist-
aramót (nafnið er GM Superto- j
urnament!) var haldið í Sarajevo, j
dagana 18. til 28. maí s.l. Mótið j
var í 16. styrkleikaflokki FIDE,
meðalstig: 2631, allir þátttak-
endur stórmeistarar, nema
heimamaðurinn, Predojevic,
sem er alþjóðlegur meistari.
Bologan (Moldavíu) og Sokolov
(nú Hollandi, áður Bosníu)
urðu jafnir í efsta sæti.
1.-2. Bologan, sm (2700) og
Sokolov, sm (2662), 61/2 v. hvor,
af 9 mögulegum; 3. Timofejev,
sm (2622, Rússlandi), 5fi2 v; 4.-
5. Shírov, sm (2714, Spáni) og
Movsesjan (2628, Slóvakíu), 5v.
hvor; 6. Eljanov, sm (2641,
Úkraínu), 4l/2 v; 7. Predojevic,
am (2549, Bosníu), 4 v; 8.-9.
Dizdarevic, sm (2520, Bosníu)
og Volokitin, sm (2679, Úkra-
ínu), 3 v. hvor; 10. Kozul, sm
(2591, Króatíu), 2 v.
Jafnt í atskákeinvígi Leko
og Adams í Miskolc
Ofurstórmeistararnir, Peter
Leko (2763, Ungverjalandi) og
Michael Adams (2737,
Englandi) tefldu atskákeinvígi,
dagana 2.-5. júní s.l., í Miskolc í
Ungverjalandi. Tefldar voru tvær
skákir á dag, 25 mínútur + við-
bót 5 sekúndur á leik.
Þetta varð mjög skfytið og kafla-
skipt einvígi. Adams vann þrjár
fyrstu skákirnar, Leko þrjár
næstu, en tvær síðustu urðu
jafntefli, sem sé 4-4.
S K A K
139