Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 10
I Gásadal, 5. ágúst 2005.
Á hádegi fimmtudaginn 4. ágúst
2005 héldu 11 skákmenn ásamt
eiginkonum tveggja þeirra af
stað í 16 tíma siglingu með Nor-
rænu áleiðis til Færeyja. Þangað
var komið ki. 5 að morgni að
færeyskum tíma 5. ágúst.
Landskeppnin var fyrst háð árið
1975 í Reykjavík og var lið Is-
lands þá skipað flestum af sterk-
ustu skákmönnum landsins,
með Friðrik Ólafsson á 1. borði. j
Island vann þá stóran sigur, og
einnig árið 1976 þegar keppnin
var haldin í Færeyjum. Var þá á-
kveðið að framvegis skyldi lið ís-
lands skipað skákmönnum úr
Skákfélagi Akureyrar og Skák-
sambandi Austurlands. 1978
markar þannig annað upphaf
keppninnar, en þá fór hún fram
á Eskifirði og Akureyri, og var
mun jafnari. 1981 var svo farið
til Færeyja, og síðan þá hefur
keppnin alltaf verið haldin ann-
að hvort ár, til skiptis í Færeyj-
um og á Islandi.
Ferðin í ár var því sú sjöunda
sem farin er frá árinu 1981 til
Færeyja. Frá SA fóru Jón Garðar
Viðarsson, Áskell Örn Kárason,
Gylfi Þórhallsson, Jón Þ. Þór,
Torfi Stefánsson, Smári Rafn
Teitsson, Hjörleifur Halldórs-
son, Sigurður Eiríksson og Ari
Friðfinnsson. Frá SSA fóru Við-
ar Jónsson og Gunnar Finnsson.
Föstudeginum var varið í skoð-
unarferð þar sem m.a. var farið
til þorpsins Gásadals, en þangað
var nýbúið að grafa göng þótt í-
búarnir séu ekki nema um 10
talsins. Þessi ferð sýndi mér að
við íslendingar getum lært
margt af Færeyingum um ganga-
gerð. Þarna eru göng bókstaflega
út um allt og enn fleiri eru í bí-
gerð. Þegar við förum næst, árið
2009, verða að öllum líkindum
líka komin göng til Klaksvíkur,
næststærsta bæjar Fæeyrja.
Á Laugardeginum var Færeyja-
meistaramótið í hraðskák haldið
í Þórshöfn og tóku 38 þátt, þar
af 9 íslendingar. Þetta var ekki
106
S K A K