Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 41
skilst að þessir Kínverjar séu ekki
allir þar sem þeir eru séðir með
stigin, geti a.m.k. verið ansi
sleipir þótt þeir séu án stiga.
Hallgerður gerði sitt 6. jafntefli,
og hefur einungis tapað tveimur
skákum á mótinu, fæstum allra
Islendinganna. Hjörvar tefldi
einnig mjög vel og skildi jafn við
sterkan Hvítrússa upp á 1880
stig.
Eftir átta umferðir af 11 er Dag-
ur með flesta vinninga af íslend-
ingunum: 4,5. Sverrir hefur
einnig gert mjög góða hluti á
mótinu og er með fjóra vinn-
inga. Daði og Hjörvar koma svo
næstir með 3,5 v., Hallgerður
hefur þrjá vinninga, Atli 2,5 v.
og Elsa og Jóhanna 1,5 v. hvor.
Við upphaf 7. umferðarinnar
voru keppendur beðnir að rísa á
fætur og minnast fórnarlamba
hryðjuverkaárásanna í Egypta-
landi, London og “partout dans
le monde” (alls staðar í heimin-
um) með einnar mínútu þögn.
Það var nokkuð sérstakt að sjá
um 1100 unga skákmenn frá 82
löndum sýna samstöðu á þenn-
an hátt.
Dagur 9, þriðjudagur 26. júlí
Frönsku veðurguðirnir voru í
miklu betra skapi í dag en í gær.
Þeir heilsuðu með léttskýjuðu,
allt að heiðskíru veðri, og hitinn
var nálægt 30°C. Þetta gladdi
vitaskuld marga, en persónulega
fannst mér alveg nóg um þenn-
an hita.
9. umferðin hófst kl. 15. Af-
raksturinn: tveir sigrar, tvö jafn-
tefli og fjögur töp, altso þrír
J vinningar. Þetta var tvímælaust |
j dagur stelpnanna, því þær höl- j
uðu inn tveimur af þeim þremur
vinningum sem við fengum, og
j engin þeirra tapaði skák. Jó- J
| hanna vann sinn annan sigur á
mótinu í vel tefldri skák af henn-
ar hálfu. Elsa gerði jafntefli, og
j Hallgerður sömuleiðis, sitt 7. á
mótinu. Hún tefldi mjög vel og
var líka nálægt því að vinna. Af j
j strákunum var Atli sá eini sem
j fékk punkt, en hann vann glæsi-
J legan sóknarsigur í einungis 22 j
leikjunt.
Kl. 16 fórum við Helgi á um-
ræðufund sem Anatoly Karpov
hélt í tennishöllinni. Yfirskrift j
fundarins var “La FIDE dema-
in”, FIDE morgundagsins. Þótt j
hann vildi ekki segja beint út var J
það mál manna að hann ætli að j
bjóða sig fram til forseta FIDE. j
Þótt hann hafi svo sem ekki haft j
neinar byltingarkenndar hug- j
myndir fram að færa er það alla- J
j vega nokkuð ljóst að hann væri
j betri í djobbinu en núverandi
j forseti. Mér fannst það líka góð-
ur punktur sem hann kom með j
um þá þróun sem orðið hefur
varðandi tímamörk. Hann var
spurður hvað honum fyndist um
j það að tímamörk væru að stytt- j
j ast, og hverja hann teldi vera á-
j stæðuna fyrir því. Svarið var á þá
leið að styttri tími þýddi nátt-
úrulega minni gæði, en Karpov {
er eins og nærri getur unnandi J
klassískra tímamarka og mikilla
gæða. Ástæðuna fyrir styttingu
tímamarka sagði hann vera til að
j koma skákinni í sjónvarp. Það
hefði hins vegar ekld gerst, og j
því þá að stytta tímann?
Dagur 10, miðvikudagur
27. júlí
Dagurinn í dag var sá heitasti í
ferðinni. I tvennum skilningi.
Hitinn var 32°C og sólin skein
án miskunnar. Við vorum að
stikna. En það var allt í lagi.
Góðu fréttirnar eru þær að
krakkarnir voru “on fire”. Og þá
meina ég sko á skákborðinu. Kl.
15 hófst 10. og næstsíðasta um-
ferðin í mótinu. Fyrstu tvö úr-
slitin sem ég vissi voru að Elsa
hafði gert jafntefli og að Atli
hefði unnið. Fínt, hugsaði ég.
Einn og hálfur af tveimur. Þetta
hefur að vísu áður byrjað vel og
dottið niður, þannig að ég var
hóflega bjartsýnn. Við höfðum
aldrei náð meira en helmingsár-
angri sem hópur (þótt þetta sé
auðvitað einstaklingsmót, þá
höfðum við sem sagt mest feng-
ið fjóra vinninga alls af átta (í 2.
og 6. umferð)). En síðan gerðist
hið skemmtilega að hver vinn-
ingurinn af öðrum datt inn.
Áður en langt um leið höfðum
við fengið 5,5 v. af þeim sex sem
voru búin. Einungis Hallgerður
og Dagur eftir. Loks kom Hall-
gerður út og viti menn: sigur!
Eftir jafntefli í síðustu fimm
skákum (og sjö jafntefli í níu
skákum) vann hún sanngjarnan
sigur. Við höfðum því fengið 6,5
v. úr sjö skákum og ansi glatt á
hjalla. Við höfðum m.a.s. heyrt
að Dagur væri með betri stöðu,
en því miður fór hitinn illa í
hann í þetta sinn og hann féll á
tíma. Skákin getur verið dálítið
miskunnarlaus stundum. En í
heildina auðvitað langbesta um-
ferðin hjá okkur, og hún kemur
á góðum tíma.
S K A K
137