Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 25
næstum að klúðra málum illilega
þar. Þannig var mál með vexti að
upphaflega var Þröstur Þórhalls-
son skráður í sveitina og á þriðja
borði. Þegar hann hætti við kom
Arnar Gunnarsson inn í sveitina
en hann er stigalægri en Bragi og
átti því að vera á fjórða borði.
Honum var hinsvegar bara
stungið inn í staðinn fyrir Þröst
og skrifaði ég undir þá liðsskip-
an í sakleysi mínu aðeins til að
uppgötva mér til mikillar skelf-
ingar þegar ég ætlaði að setjast til
matarborðs að mér höfðu orðið
á skelfileg mistök. Sem betur fer
var ég nógu snöggur að fatta
þetta og náði að láta laga þetta í
tölvukerfi skákstjóra án mikilla
vandræða.
Hér fer eftir yfirlit yfir umferð-
irnar, úrslit úr viðureignum og
nöfn andstæðinga. Viðureignir
karlaliðsins eru ávallt nefndar á
undan í þessari samantekt.
I. umferð
Island-Azerbaijan 0,5-3,5
(hvítt á fyrsta borði)
1 GM Teimour Radjabov 2682
2 GM Shakhriyar Mamedyarov
2646
3 GM Vugar Gashimov 2594
4 GM Gadir Guseinov 2585
Island-Rúmenía 1-3
(hvítt á fyrsta borði)
1 IM Corina Peptan 2411
2 IM Cristina Foisor 2402
3 WGM Adina Bogza 2325
4 WIM Ana Calotescu 2273
Báðar sveitirnar tefldu vel upp
fyrir sig og fengu mjög sterka
andstæðinga. Miðað við styrk-
leikamun hefði einn til einn og
hálfur verið ásættanlegt skor en
aðeins Hannes hélt jöfnu að
þessu sinni. Kvennasveitin náði í
raun sínum bestu úrslitum í
keppninni gegn mjög sterkri
sveit sem var í toppbaráttu í
mótinu en náðu því miður ekki
að fylgja þeim eftir.
2. umferð
Ísland-Makedónía 2,5-1,5
(svart á fyrsta borði)
1 GM Vladimir Georgiev 2532
2 GM Trajce Nedev 2530
3 GM Dragoljub Jacimovic
2438
4 IM Vanco Stamenkov 2391
Ísland-Króatía 0,5-3,5
(svart á fyrsta borði)
1 WGM Mirjana Medic 2268
2 WIM Rajna Sargac 2242
3 WIM Vlasta Macek 2211
4 WIM Mara Jelica 2191
Karlaliðið vann góðan sigur á
Makedónum sem voru aðeins
ofar en við í stigaröðinni. Hann-
es vann frekar auðveldan sigur á
Georgiev sem tefldi byrjunina
“eins og skunkur” að sögn
Hannesar. Stefán tapaði og Bragi
hélt auðveldu stuttu jafntefli.
Arnar innsiglaði svo stigið með
því að yfirspila andstæðing sinn
stöðulega.
Aðeins Lenka náði jafntefli hjá
stelpunum en hinar töpuðu sín-
um skákum. Lilja og Guðlaug
lentu báðar í erfiðum stöðum og
töpuðu erfiðum endatöflum en
Sigurlaug lék af sér með yfir-
burðastöðu.
S K A K
121