Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 20
“ELlin ogœskan”
Hér glíma þeir Kristján Stefánsson, Guðmundur G. og Guðfinnur við upprennandi
skáksnillinga. A myndinni sjást ungsnillingarnir Ingvar Asbjörnsson og Jökull
Kjartansson
Um miðjan ágúst hélt Hrafn
Jökulsson, Hrókurinn, sitt
þriðja mót í Grænlandi á jafn
mörgum árum. Þetta skákmót
var haldið á austurströndinni, í
Tasiilak, annað árið í röð en
fyrsta mót Hróksins þarna var á
vesturströndinni. Hrafn hefur
þegar ákveðið að fjórða mótið
verði næsta sumar í Tasiilak sem
hann segir að sé sá staður sem
hann mun helga skákstarf sitt á
Grænlandi. Víða fer hann þessi
maður, nokkur skákmót hefur J
hann haldið í Namibíu og mark-
miðið er alls staðar að efla áhuga
yngri kynslóðarinnar á skák. Það
er ótrúlegt brautryðjendastarf
sem Hrafn er að vinna, hann
hrífur menn með og árangur er
að byrja að sjást, en þetta er mik-
il vinna.
Dálítil tölfræði
Skýrslur símafyrirtækis sýna að
Hrafn Jökulsson talaði í síma
árið 2003 um 1045 klst. Þetta er
miðað við 8 klst vinnudag um
130,6 vinnudagar, matar- og
kaffitímar ekki teknir. Miðað við
5 daga vinnuviku er þetta rúm-
lega 26 vikur á einu ári, þ.e.
hálfs árs vinna við að tala í síma
nonstop. Skýrslur sýna að inn-
hringingar í símann voru jafn-
margar og úthringingar sem seg-
ir sína sögu. En umfram allt
þetta er bara skrá yfir eitt síma-
númer, hér er elcki tekið með
það sem Hrafn talaði í aðra síma
á þessu ári. Menn sjá að skipu-
lagning á starfi Hróksins er tals-
verð vinna. Ekki fer allt starfið
fram í síma.
Staður við vatnið
Mín litla kunnátta í tungumáli
Grænlendinga segir mér að Tasi-
ilak þýði staður við vatnið. Tasek
mun vera vatn. Fjöldi þátttak-
enda var um 60, þar af margir
Grænlendingar, mörg börn. Við
Islendingarnir flugum til
Kulusuk, sem er um 300 manna
þorp á eyju við austurströndina.
Þaðan tókum við þyrlu, sumir
bát, til Tasiilak. Flugferðin með
þyrlunni tók um 8-10 mínútur.
Tasiilak er um 17-1800 manna
þorp á eyjunni Angmaksalik og
stærsta byggðin á austurströnd-
inni. A nítjándu öldinni var
byggð á austurströndinni nær
horfin, líklega eftir um 2-300
íbúar. Danir tóku sig þá til og
skipulögðu og reistu þorp í Tasi-
ilak, byrjuðu að byggja þar
1894. Mikill munur er á austur-
strönd og vesturströnd. A aust-
urströndinni er lítið sem ekkert
116
S K A K