Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 28
Ísland-Tyrkland 0,5-3,5
(hvítt á fyrsta borði)
1 WIM Yildiz Betul Cemre
2155
2 WFM Topel Zehra 2081
3 WIM Cinar Corlulu Nilufer
2038
4 WFM Bayrak Asli 1967
Karlaliðið tapaði gegn sterkri
GM sveit Króata með minnsta
mun. Hannes tapaði fljótlega
skiptamun í miðtaflinu og
viðureignin leit því strax ekki
nógu vel út. Stefán og Arnar
fengu ekki nógu mikið með
hvítu en staðan hjá Braga virtist
í fínu lagi. Bragi tapaði hinsveg-
ar eftir kröftuga taflmennsku
Zelcic og Arnar og Stefán gerðu
báðir jafntefli eftir miklar svipt-
ingar í báðum skákum. Hannes
náði svo með seiglu að bjarga
jafntefli gegn Kozul en það
dugði ekki til.
Kvennaliðið tapaði alltof stórt
fyrir tyrknesku sveitinni en þó
má benda á að þær tyrknesku
eru allar ungar og virðast sterkari
en stigin gefa til kynna. Lenka
náði ekki að fá neitt úr byrjun-
inni og gerði jafntefli en Guð-
laug lék klaufalega af sér með
gjörunnið. Á þriðja og fjórða
borð lentu stelpurnar fljótlega í
vandræðum eftir byrjunina og
áttu ekki mikla möguleika.
7. umferð
Island-Spánn 2-2
(hvítt á fyrsta borði)
1 GM Miguel Illescas Cordoba
2624
2 GM Pablo San Segundo 2514
3 IM Manuel Candelario 2504
4 GM Salvador Del RioAngelis
2470
Island-Sviss 1,5-2,5
(svart á fyrsta borði)
1 WGM Lematschko Tatjana
2205
2 WFM Seps Monika 2173
3 WCM Wilson Alexandra
2056
4 Roelli Corinne 2001
Góð úrslit hjá karlaliðinu en mið-
að við gang mála voru þau frekar
svekkjandi. Hannes vann góðan
sigur á Illescas, einum sterkasta
skáltmanni Spánverja til margra
ára. Hjá Braga stefndi fljótlega í
jafntefli en síðan virtist Stefán
vera með alla vinningsmöguleika
í sinni skák og Arnar átti að eiga
auðvelt jafntefli eftir að hafa snú-
ið sig útúr passífri stöðu í byrjun-
inni. Niðurstaðan varð hinsvegar
að andstæðingur Stefáns hékk á
jafnteflinu og Arnar lék jafntefl-
inu í tap og við urðum því að
sætta okkur við jafntefli.
Kvennasveitin varð að sætta sig
við tap með minnsta mun gegn
Sviss. Guðlaug vann góðan sigur
á öðru borði, yfirspilaði Seps al-
gjörlega. Lilja og Lenka töpuðu j
hinsvegar án mikilla sviptinga og
því lá möguleikinn hjá Sigur-
laugu að jafna viðureignina en
henni tókst ekki að vinna mjög
vænlegt tvöfalt hróksendatafl.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánss.
(2579)
Svart: Illescas Cordoba, M
(2624)
Grunfeld [D85]
l.d4 Rf6 2.c4 g6 3.Rc3 d5
4.cxd5 Rxd5 5.e4 Rxc3 6.bxc3
Bg7 7.Da4+
Hannes velur hér óalgengan leik
í stöðunni til að sneiða hjá byrj-
anaþekkingu Illescas en það er
einn af styrkleikum hans sem
skákmanns. Þetta er líklegast
skynsöm ákvörðun hjá Hannesi.
7. - c6 8.Da3 0-0 9.Bg5 Dc7
Það er athyglisvert og um leið
óvenjulegt hvernig hvítur setur
pressu á e7 peðið svo snemma
tafls. Síðasd leikur svarts er nýj-
ung skv. mínum gagnagrunni og
taktísk lausn á hótun hvíts gegn
e-peðinu þar sem svartur svarar
drápi á e7 með He8 og e4 peðið
fellur í staðinn.
10.Bd3 c5 ll.Re2 b6 12.0-0
e6 13.dxc5 bxc5
Hannes sagðist hafa verið orðinn
ánægður með stöðuna hér.
Svona stöður væru alltaf aðeins
betri á hvítt.
l4.Habl Rd7 15.Bb5 Bb7
I6.f3 Re5 17.Rg3!?
Djúpur leikur hjá Hannesi.
124
S K Á K