Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 34
Skákdeild eldri borgara
- heimsækir eldri félaga í Skákfélagi Akureyrar
Dagana 28. og 29. maí sl. hélt
níu manna hópur úr F.F..B. í
Reykjavík til Akureyrar, þar sem
háð var keppni við heimamenn.
A laugardaginn hófst atskák-
keppni með 20 mínútna um-
hugsunartíma á skákina. Teflt
var í tveim riðlum, A og B. I A-
flokki voru keppendur fimm frá
hvoru félagi og fóru leikar
þannig að liðin skildu jöfn með
121/2 vinning gegn 121/2 eftir
jafna og harða baráttu. Bestum
árangri heimamanna náði Ólaf-
ur Kristjánsson, sem tefldi á 1.
borði, 4 v. af 5, tapaði engri
skák. Bestum árangri gestanna
náði Jóhann Örn Sigurjónsson á
1. borði, 4Ú2 af 5.
f B-riðli voru keppendur fjórir
frá hvoru liði og fóru leikar
þannig að liðin skildu jöfn,
hlutu hvor um sig 8 vinninga.
Bestum árangri heimamanna
náði Haraldur Ólafsson, 3 v. af
4, tapaði engri skák. Bestum
árangri gestanna náði Haraldur
Axel Sveinbjörnsson, 2Ú2 v. af 4.
Á sunnudagsmorgun hófst svo
hraðskákkeppni þar sem tefld var
tvöföld umferð með 7 mínútna
umhugsunartíma á skákina.
Hart var barist allan tímann og
skiptust liðin á um forystu eftir
hverja umferð. Þegar síðasta lot-
an hófst höfðu gestirnir fjögurra
vinninga forskot, en heima-
mönnum tókst með harðfylgi að
jafna metin! Urðu lokatölur því
81 v. gegn 81, sem áreiðanlega
eru sjaldgæf úrslit í svo mörgum
skákum. Bestum árangri norð-
anmanna í hraðskákinni náði
Ólafur Kristjánsson, 14Ú2 v. af
18, en bestum árangri gestanna
náði Jóhann Örn Sigurjónsson,
15Ú2 v. af 18.
Gestirnir að sunnan fengu frá-
bærar móttökur á Akureyri og
vill Skákdeild F.E.B. þakka fyrir
þær. Veitingar voru rausnarlegar
og ekki spillti veðrið, sól og blíða
báða dagana. Við brottför af-
henti Þór Valtýsson gestum fagr-
an áletraðan skjöld til minning-
ar um komuna.
Birgir Sigurðsson
Skákkeppni F.E.B. úr Reykjavík við eldri borgara úr Skákfélagi Akureyrar 28. og 29. maí á Akureyri A-riðill Ólafur Kristjánsson Þór Valtýrsson Hjörleifur Halldórsson Ari Friðfinnsson Atli Benediktss. Vinningar
1. Jóhann Örn Sigurjónsson 1/2 1 1 1 1 4i/2
2. Lárus Johnsen 1/2 1 1/2 1 1 4
3. Kári Sólmundarson 0 1/2 1/2 0 1/2 11/2
4. Páll G.Jónsson 0 1 0 0 0 1
5. Gísli Sigurhansson 0 0 1/2 1 0 11/2
Skákkeppni F.E.B. úr Reykjavík við eldri borgara úr Skákfélagi Akureyrar 28. og 29. maí á Akureyri B-riðill Karl Steingrímsson Bragi Pálmason Haraldur Ólafsson Haukur Jónsson Vinningar
1. Haraldur Axel Sveinbjörnsson 1/2 1 0 I 21/2
2. Björn Víkingur Þórðarson 1/2 0 1/2 1 2
3. Grímur Ársælsson 1/2 0 0 1 11/2
4. Birgir Sigurðsson 1/2 1/2 1/2 1/2 2
130
S K Á K