Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 31
Eitthvað kœtir Rússana...skildiþað vera klœðnaður 4. borðs manns Islands?
Gulir sokkar og bindi við hlýrabol! Bragi og Stefán virðast svo liggja á bœn!
Stefán tefldi einnig betur en eló-
stig gefa til kynna og var með
stigaárangur upp á 2536. Vann
nokkra góða sigra og var einnig
nálægt sigri gegn Spáni. Stefán
virðist vera að festa sig í sessi
stigalega yfir 2450 og vantar að-
eins að fínpússa hjá sér byrjana-
fræðin og stúdera aðeins meira
til að taka skrefið stóra í stór-
meistarann.
Bragi tefldi aðeins undir sínum
stigum með stigaárangur upp á
2406, hefði raunar verið í lagi ef
hann hefði ekki tapað í síðustu
umferð gegn Pontusi. Bragi
lenti reyndar í smá lægð í sumar
og sjálfstraustið því eltki upp á
sitt besta. Einnig finnst mér
Bragi leggja stundum full mikið
á stöðurnar en það er ekki
spurning að Bragi verður fljótur
að vinna sig úr þessari tíma-
bundnu lægð og gott jafntefli
gegn Motylev (2675) ætti að
vera gott veganesti í þeirri bar-
áttu.
Arnar tefldi eins og Bragi undir
stigum með stigaárangur upp á
2385. Það er sama með Arnar
og hina strákana, hann þarf að
vinna betur í sínum byrjunum.
Fær of sjaldan frumkvæði með
hvítu og tekur á sig passífar stöð-
ur með svörtu. Það er hinsvegar
engin tilviljun að Arnar er jafn
stigahár og hann er. Enginn efast
um hæfileika hans og oftar en
ekki bjargar hann sér úr erfiðum
stöðum (Bareev skákin) og nær
að búa til eitthvað úr litlu sbr.
sigurinn gegn Makedónanum.
Það væri gaman að sjá hvaða ár-
angri Arnar næði ef hann tæki
sína byrjanakunnáttu rækilega í
gegn.
Árangurinn hjá sveitinni var vel
viðunandi og má í raun segja að
allt hafi verið eftir bókinni en
sveitin aðeins náði góðum
punktum gegn Makedónum og
Spáni. I síðustu umferð hefði ég
reyndar viljað sjá lágmark jafn-
tefli en það voru samt einu óvið-
unandi úrslitin (tapið gegn Sviss
kannski aðeins of stórt líka).
Einnig vorum við í raun með
1,5-2,5 í hendi gegn Rússum og
ég tel það frábæran árangur þótt
ég viti að allir séu ekki sammála
mér þar. Þrátt fyrir að það sé
ekki sigur er það miðað við nú-
verandi styrkleikamun sveitanna
nánast ómögulegt að sigra slíka
sveit og því í raun hálfur sigur!
Hjá stelpunum var árangurinn
eftirfarandi:
ísland-kvennalið (I Stig/7 vinningar) 23. í stigaröð lokasæti 25 af 26
Bo. Nafn Eló FED 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Vin # % Mst.
1 WGM Lenka Ptacnikova 2204 ISL 1/2 1/2 1/2 0 0 1/2 0 0 0 2 9 22,2 2286
2 Guðlaug Þorsteinsd. 2132 ISL 1/2 0 1/2 0 0 0 1 0 0 2 9 22,2 2222
3 WIM Lilja Grétarsdóttir 2046 ISL 0 0 0 0 1 0 0 0 0 1 9 1 1,1 2147
4 Sigurlaug Friðþjófsd. 1963 ISL 0 0 1/2 0 1 0 1/2 0 0 2 9 22,2 2094
S K A K
127