Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 37
hafði grafið upp í gegnum Flug-
leiðir, og var það á að líta eins og
paradís endurheimt eftir eina
nótt í “albönsku fangaklefun-
um” í Sochaux. Þar að auki var
það staðsett í hjarta Belfort, og í
10 mínútna strætófjarlægð frá
keppnisstað. Góðu fréttirnar
voru að afgreiðslukonan átti níu
laus herbergi daginn eftir, en
slæmu fréttirnar þær að ferða-
skrifstofan sem sá um að útvega
mótelið var ekki tilbúin að leyfa
flutninginn, sem þýddi hálfrar
milljónar aukaútgjöld fyrir okk-
ur ef við ætluðum að skipta. Nú
voru því góð ráð dýr. Næsti lið-
ur í hernaðaráætluninni var að
reyna að fá mótshaldarana til að
greiða flutninginn, en við vorum
samt ansi svartsýnir á það eftir
það sem á undan var gengið.
Hins vegar var engu að tapa svo
við fórum á fund þess sem sá um
að neita fólki um svona beiðnir.
Ekki leit þetta vel út á meðan við
biðum eftir áheyrn, því næst á
undan oltkur var danski farar-
stjórinn, sem var í svipuðum
vandræðum og við, og hann var
nú einfaldlega alveg tekinn í nef-
ið. Hins vegar gerðist það ótrú-
lega, að Frakkinn varð hinn
vinalegasti þegar hann sá að
hann átti í höggi við Grand-
master H. Olafsson from
Iceland, og eftir frernur stutta
viðureign varð hann að játa sig
sigraðan! Frakkinn tók sem sagt
á sig að greiða flutninginn og við
gengum burt sigri hrósandi.
Það var hálfgerður beygur í
mönnum að þurfa gista aftur í
klefunum, en stórsigur Helga
fyrr um daginn létti mönnurn
lundina þó töluvert.
Dagur 3, miðvikudagur 20. jálí
Við vorum frelsinu fegin þegar
við yfirgáfum Sochaux. Það tók
að vísu sinn tíma að sleppa burt,
m.a. vegna þess að konan á
Benz-leigubílnum var með of-
vaxinn hund með sér sem tók
dýrmætt pláss. Við komumst þó
öll á endanum á nýja hótelið,
Comfort Inn, sem er bara allt í
lagi. Síðan var haldið á skákstað
og borðað, og nú var m.a.s. mat-
urinn orðinn betri. Rigningar
síðustu tveggja daga höfðu hætt
og sólin farin að skína, bæði í
bókstaflegri og yfirfærðri merk-
ingu. Skrýtið. Eftir erfiða fæð-
ingu virtist sem nú ætlaði að
rætast úr öllu, og það skilaði sér
beint á skákborðið. Eftir fremur
dapurt gengi í fyrstu umferð
höluðu krakkarnir nú inn fjóra
vinninga. Dagur hélt áfram á
sömu braut, og nú gerði hann
sér lítið fyrir og sigraði heims-
meistarann frá 2004 í 16 ára
flokki (sem nú var í 18 ára flokki
eins og Dagur), Maxim
Rodshtein frá Israel. Þetta er
drengur upp á 2454 Elo-stig, en
hann átti ekki roð í Dag Arn-
grímsson frá Islandi. Sverrir
vann íra og Hjörvar vann Kín-
verja. Daði gerði jafntefli við
1929 stiga Frakka, og Elsa gerði
einnig jafntefli, við stelpu frá Al-
sír. Atli er búinn að fá mjög
stigaháa andstæðinga (+2200) í
báðum umferðum og hefur
barist af miklum krafti. Jóhanna
hefur einnig fengið stigaháa
andstæðinga (önnur með 1991
og hin með 1833 Elo-stig) en
svona mót eru auðvitað mjög
góð reynsla íyrir krakkana, vett-
vangur fyrir framfarir. Hallgerð-
ur tapaði fyrir stelpu frá Samein-
uðu arabísku Furstadæmunum,
en er með hálfan vinning úr 1.
umferð.
Eftir kvöldmat tókum við strætó
nr. 1 kl. 20 á hótelið og þar sem
menn voru nokkuð þreyttir var
bara slakað á og farið tiltölulega
snemma að sofa.
Dagur 3 hafði verið góður dag-
ur.
Dagur 4, fimmtudagur 21. júlí
Fimmtudagurinn heilsaði með
ágætu veðri, iéttskýjuðu og ná-
lægt 25°C. Sumir fengu sér
morgunmat sem endaði kl.
9:30, á meðan aðtir sváfu aðeins
lengur. Eg sýndi Degi og Atla
frönsku útgáfuna af Bónus, sem
heitir Norma og er rétt hjá hót-
elinu. Þetta er frelcar “shabby”
búð með lélegu úrvali, en verðið
er vissulega lágt. Seinna um dag-
inn fann ég hins vegar “Kringl-
una”, sem er ekki nema í um
500m fjarlægð frá hótelinu. Það
var virkilega smekkleg verslunar-
miðstöð sem heitir LeCIerc og er
mjög sambærileg við Carréfour
(fyrir þá sem þekkja það). Á
jarðhæð er ein risaverslun með
34 afgreiðslukössum þar sem
hægt er að fá nokkurn veginn
hvað sem er. I byggingunni eru
einnig nokkrar sérverslanir, bar
og snyrtilegur veitingastaður
(Crescendo).
Um morguninn voru krakkarnir
í undirbúningi hjá Helga, en
síðan var farið á keppnissvæðið
(Complexe Sportif de Belfort)
og borðað í tennishöllinni fyrir
átökin. Kl. 15 byrjaði svo 3. um-
ferð.
s K Á K
133