Skák


Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 36

Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 36
Beðiðfyrir utan keppnisstað, 20. júlí 2005. vinnu sem þarf að vinna á móti sem þessu. Svo til að toppa dæmið var ekki einu sinni hægt að kaupa vatn þarna, hvorki venjulegt né kolsýrt, einungis gossull úr sjálfsala. Þetta var sem sagt það sem tók á móti okkur kl. 23:30, eftir um 19 tíma ferðalag. Hópnum var enda allbrugðið við þessa að- komu og strax var rætt um að ekki væri hægt að láta krakkana keppa á mótinu við svona að- stæður. Dagur 2, þriðjudagur 19. júlí Morgunmaturinn var náttúru- lega fremur ómerkilegur eins og annað á “hótelinu”, en að hon- um loknum fórum við Helgi á tæknifund sem mótsstjórnin hélt á skákstað. Fundurinn átti að hefjast kl. 10:30, og rútan lagði af stað frá okkur um kl. 9:50. Hún stoppaði hins vegar á hverju vegamótelinu á fætur öðru að sækja fararstjóra annarra landa, sent virtust litlu heppnari en við með gistingu. A endanum komum við 40 mínútum of seint á fundinn, og var ansi þung brúnin á þeim u.þ.b. 50 farar- stjórum (af 82 þátttökulöndum í keppninni) sem þarna voru. Með okkur í rútunni hafði verið fararstjóri Wales, og hann hóf strax upp raust og hélt þrum- andi skammarræðu yfir móts- höldurunum fyrir lélega skipu- lagningu. Hann kvartaði nt.a. undan gistingunni og verðinu á henni. I rútunni hafði ég heyrt hann segja í símann: “They’re ripping us off; left, right and center!” Fyrir ræðuna fékk hann dynjandi lófatak flestra í saln- um, þ.á.m. íslensku fararstjór- anna, en mótshaldararnir létu sér fátt um finnast og sýndu engin merki um iðrun. Margir fleiri tóku til máls og voru ailir mjög ósáttir. Því miður svöruðu mótshaldararnir flestum kvört- unum bara með skætingi. Wales- fararstjórinn lét svo ganga und- irskriftalista þar sem skorað var á alla að mótmæla skipulagning- unni á opnunarathöfninni seinna um daginn, jafnvel að sniðganga hana alfarið. Ekki varð af því, en athöfnin, sem fólst í að allir 1100 þátttakend- urnir gengu hring um skáksalinn (skautahöll staðarins) með fána sinnar þjóðar (líkt og á Olymp- íuleikunum) frestaðist um eina og hálfa klukkustund, og ekki tók betra við þegar kom að því að para saman í fyrstu umferð. Upphaflega átti umferðin að byrja kl. 15, en hún byrjaði ekki fyrr en ld. 18. Augljóst var að stjórnendur réðu ekki við starf- ið, og reyndar segja allir sem ég hef talað við að þetta sé verst, verst skipulagða heimsmeistara- mót sem þeir hafi séð. Þegar horft var yfir salinn við upphaf umferðar bar að líta 1100 þreytta krakka, það er náttúru- lega engin leið til að byrja heimsmeistaramót. Okkar krakkar áttu líka slæman dag, fengu einungis 1,5 vinninga (átta krakkar). Ljósi punktur dagsins var því að Dagur Arn- grímsson byrjaði mótið á sigri. Hallgerður stóð sig einnig vel og hélt jöfnu með svörtu, en aðrir biðu lægri hlut. Fyrr um daginn var mikið pælt í hvernig væri hægt að bæta að- stöðuna okkar. Ymsar hug- ntyndir komu fram, t.d. að leigja bílaleigubíl, reyna að skipta um hótel, jafnvel að segja skilið við keppnina ef ekki væri hægt að fá neina úrlausn. Við fararstjórarn- ir fórum á stúfana og könnuðum málið. Við skoðuðum m.a. tveggja stjörnu hótel sem Edda 132 S K A K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.