Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 53
r
Skákþing Islands og Heimsmeistaramót
tölvuforrita í skák
Skákþing íslands 2005 sett í Háskólanum i Reykjavík afforseta S.I. Guðfríði Lilju Grétarsdóttur.
Dagana 11.-21. ágúst s.l. stóðu
Skáksamband Islands og Há-
skólinn í Reykjavík fyrir skák-
hátíð í skólanum. Skákþing ís-
lands í landsliðs- og áskorenda-
flokki og Heimsmeistaramót
skákforrita voru tefld þar, auk
margra fleiri skákviðburða.
Skákþingið var sett 11. ágúst af
Guðfríði Lilju Grétarsdóttur,
forseta Skáksambands íslands.
Kröftugt tónlistaratriði, þar sem
Þórunn Lárusdóttir söng lag úr
söngleiknum Kabarett við pí-
anóundirleik, lífgaði upp á sam-
komuna, skákmeistararnir í
landsliðsflokki voru kynntir fyr-
ir viðstöddum og Arni Emils-
son, útibússtjóri í Landsbanka
íslands hf, aðalstyrktaraðila
mótsins, lék fyrsta leikinn fyrir
Sigurð Daða Sigfússon í skák við
Hannes Hlífar Stefánsson, Is-
landsmeistara.
Þegar Skákþingið var komið í
gang fór fram einvígi í samráða-
skák, þar sem annars vegar tefldu
Guðfríður Lilja og Ossur Skarp-
héðinsson, alþingimaður, og hins
vegar Harpa Ingólfsdóttir, Is-
landsmeistari kvenna, og Guð-
laugur Þór Þórðarson, alþingis-
maður og borgarfulltrúi í Reykja-
vík. Lilju og Össuri dugði ekki að
vinna fyrstu skákina, því að Harpa
og Guðlaugur unnu tvær næstu
og þannig einvígið, með 2-1.
S K A K
149