Skák


Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 62

Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 62
Þrír jafnir í efsta sæti í áskorendaflokki Tómas Björnsson, Þorvarður F. Olafsson og Jóhann H. Ragnars- son urðu jafnir í efsta sætinu og tryggðu sér þar með rétt til að tefla í landsliðflokki á næsta ári. Þeir hlutu 61/2 v. hver, af 9 mögulegum. I 4.-7. sæti komu svo Jón Arni Halldórsson, Guð- laug Þorsteinsdóttir, Haraldur Baldursson og hinn 12 ára gamli, Hjörvar Steinn Grétars- son, með 6 v. hvert. Fjögur efstu sætin gefa rétt til þátttöku í landsliðsflokki, þannig að tefla þurfti auka- keppni um 4. sætið. Teflt var í húsnæði Skáksambandsins 26.- 28. ágúst s.l. Urslitin urðu: 1. Hjörvar Steinn Grétarss. 2 v. af 3; 2. -3. Guðlaug Þorsteinsdóttir og Jón Árni Halldórsson, 11/2 v. hvort; 4. Haraldur Baldursson, 1 v. Lokaumferðin varð dramtísk í meira lagi. Hjörvari dugði jafn- tefli gegn Guðlaugu, en Jón Árni varð að vinna Harald til að eiga möguleika á aukakeppni við Hjörvar. Og spennan var mikil, þegar ljóst var, að Hjörvar stóð höllurn fæti, en Jón átti unnið tafl. Hjörvari tókst ekki að bjarga taflinu gegn Guðlaugu, en það tókst Haraldi hins vegar, gegn Jóni Árna, á ótrúlegan hátt. Hann leiddi Jón í pattgildru. Þar með lágu söguleg úrslit fyrir. Hjörvar Steinn er yngsti skák- maður á íslandi til að tryggja sér landsliðssæti, aðeins 12 ára að aldri. Hann slær nú met Þrastar Árnasonar, frá árinu 1986, er hann var í sömu stöðu. Tómas Björnsson sigldi af ör- yggi í gegnum mótið, vann fjór- ar fyrstu skákirnar, en gerði jafn- tefli í fimm síðustu. Þorvarður og Jóhann tóku sín sæti einnig nokkuð örugglega. Hjörvar Steinn kom hins vegar skemmti- lega á óvart. Hann hefur sýnt það að undanförnu, að hann er óvenjumikið skákmannsefni og landsliðssætið núna er enn eitt stórt skerfið framávið. Það verð- ur spennandi að fylgjast með Hjörvari í framtíðinn, hann get- ur náð langt, ef hann heldur vel á spöðunum. Jón Árni, Guðlaug og Haraldur misstu naumlega af lestinni, en heppnin var ekki þeirra megin, að þessu sinni. Til viðbótar við hefðbundin verðlaun, fyrir 1.-3. sætið, voru veitt aukaverðlaun: Efiti keppandi undir 2000 stigum: Hjörvar Steinn Grétarsson, í 4. sæti (eftir aukakeppni), með 6/9. Efsti keppandi undir 1600 stigum: Þorsteinn Leifsson, í 17. sæti, með 4i/2/9. Efisti keppandi, yngri en 16 ára: Sverrir Þorgeirsson, í 14. sæti, með 3/9. Kvennaverðlaun: Guðlaug Þorsteinsdóttir, í 5-6. sæti (eftir aukakeppni), með 6/9. Efsti stigalausi keppandinn: Bjarni Jens Kristinsson, í 21. sæti, með 41/2/9. Um önnur úrslit vísast til með- fylgjandi töflu. 4. umferð: Hvítt: Jóhann H. Ragnarsson Svart: Tómas Björnsson Móttekið drottningarbragð Informator: D27 l.d4 d5 2.c4 dxc4 3.Rf3 Rf6 4.e3 e6 5.Bxc4 c5 6.0-0 a6 7.a4 Rc6 8.De2 Dc7 9.Rc3 Be7 10.d5 exd5 ll.Rxd5 Rxd5 12.Bxd5 0-0 13.Bd2 13. - Bf5 Nýr leikur. Þekkt er, m.a., 13. - Bf6 l4.Bc3 Re7 15.Bxf6 Rxd5 l6.Be5 Dc6 17.e4 Rf6 18.Hfel Bg4 19.De3 Hfe8 20.Bxf6 Dxf6 21.e5 Dg6 22.Rd2 Had8 23.Rc4 Hd3 24.De4 Dxe4 158 S K A K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.