Skák - 01.09.2005, Page 62
Þrír jafnir í efsta sæti í áskorendaflokki
Tómas Björnsson, Þorvarður F.
Olafsson og Jóhann H. Ragnars-
son urðu jafnir í efsta sætinu og
tryggðu sér þar með rétt til að
tefla í landsliðflokki á næsta ári.
Þeir hlutu 61/2 v. hver, af 9
mögulegum. I 4.-7. sæti komu
svo Jón Arni Halldórsson, Guð-
laug Þorsteinsdóttir, Haraldur
Baldursson og hinn 12 ára
gamli, Hjörvar Steinn Grétars-
son, með 6 v. hvert.
Fjögur efstu sætin gefa rétt til
þátttöku í landsliðsflokki,
þannig að tefla þurfti auka-
keppni um 4. sætið. Teflt var í
húsnæði Skáksambandsins 26.-
28. ágúst s.l.
Urslitin urðu:
1. Hjörvar Steinn Grétarss.
2 v. af 3;
2. -3. Guðlaug Þorsteinsdóttir
og Jón Árni Halldórsson,
11/2 v. hvort;
4. Haraldur Baldursson, 1 v.
Lokaumferðin varð dramtísk í
meira lagi. Hjörvari dugði jafn-
tefli gegn Guðlaugu, en Jón
Árni varð að vinna Harald til að
eiga möguleika á aukakeppni við
Hjörvar. Og spennan var mikil,
þegar ljóst var, að Hjörvar stóð
höllurn fæti, en Jón átti unnið
tafl. Hjörvari tókst ekki að
bjarga taflinu gegn Guðlaugu,
en það tókst Haraldi hins vegar,
gegn Jóni Árna, á ótrúlegan hátt.
Hann leiddi Jón í pattgildru.
Þar með lágu söguleg úrslit fyrir.
Hjörvar Steinn er yngsti skák-
maður á íslandi til að tryggja sér
landsliðssæti, aðeins 12 ára að
aldri. Hann slær nú met Þrastar
Árnasonar, frá árinu 1986, er
hann var í sömu stöðu.
Tómas Björnsson sigldi af ör-
yggi í gegnum mótið, vann fjór-
ar fyrstu skákirnar, en gerði jafn-
tefli í fimm síðustu. Þorvarður
og Jóhann tóku sín sæti einnig
nokkuð örugglega. Hjörvar
Steinn kom hins vegar skemmti-
lega á óvart. Hann hefur sýnt
það að undanförnu, að hann er
óvenjumikið skákmannsefni og
landsliðssætið núna er enn eitt
stórt skerfið framávið. Það verð-
ur spennandi að fylgjast með
Hjörvari í framtíðinn, hann get-
ur náð langt, ef hann heldur vel
á spöðunum.
Jón Árni, Guðlaug og Haraldur
misstu naumlega af lestinni, en
heppnin var ekki þeirra megin,
að þessu sinni.
Til viðbótar við hefðbundin
verðlaun, fyrir 1.-3. sætið, voru
veitt aukaverðlaun:
Efiti keppandi undir 2000 stigum:
Hjörvar Steinn Grétarsson, í 4.
sæti (eftir aukakeppni), með
6/9.
Efsti keppandi undir 1600 stigum:
Þorsteinn Leifsson, í 17. sæti,
með 4i/2/9.
Efisti keppandi, yngri en 16 ára:
Sverrir Þorgeirsson, í 14. sæti,
með 3/9.
Kvennaverðlaun:
Guðlaug Þorsteinsdóttir, í 5-6.
sæti (eftir aukakeppni), með
6/9.
Efsti stigalausi keppandinn:
Bjarni Jens Kristinsson, í 21.
sæti, með 41/2/9.
Um önnur úrslit vísast til með-
fylgjandi töflu.
4. umferð:
Hvítt: Jóhann H. Ragnarsson
Svart: Tómas Björnsson
Móttekið drottningarbragð
Informator: D27
l.d4 d5 2.c4 dxc4 3.Rf3 Rf6
4.e3 e6 5.Bxc4 c5 6.0-0 a6 7.a4
Rc6 8.De2 Dc7 9.Rc3 Be7
10.d5 exd5 ll.Rxd5 Rxd5
12.Bxd5 0-0 13.Bd2
13. - Bf5
Nýr leikur. Þekkt er, m.a., 13. -
Bf6 l4.Bc3 Re7 15.Bxf6 Rxd5
l6.Be5 Dc6 17.e4 Rf6 18.Hfel
Bg4 19.De3 Hfe8 20.Bxf6 Dxf6
21.e5 Dg6 22.Rd2 Had8
23.Rc4 Hd3 24.De4 Dxe4
158
S K A K