Skák - 01.09.2005, Blaðsíða 40
ingastaðinn Crescendo í verslun-
armiðstöðinni. Síðan tókum
við fimmuna á íþróttasvæðið
(þar sem teflt er) og skelltum
okltur í sundlaugina sem þar er,
með frímiðum sem mótsstjórnin
gaf okkur. Þetta reyndist þó
mjög snöggt bað fyrir undirrit-
aðan sem að öðrum ólöstuðum
vann líklega stærsta afrek dags-
ins: eftir um hálfa mínútu í laug-
inni tókst mér að láta reka mig
burt af sundstaðnum! Orugglega
ekki margir fararstjórar sem geta
státað af því. Nú veit ég að les-
endur þessa pistils bíða spenntir
eftir að vita hvernig ég fór að
þessu, og nei, málið snerist ekki
um skrílslæti af minni hálfu eða
dónalega hegðun við aðra sund-
laugargesti þótt ótrúlegt megi
virðast, heldur var bannað að
vera í stuttbuxum! Já, það má
sem sagt ekki vera í stuttbuxum
í þessari sundlaug, bara sund-
skýlu. Eg útskýrði fyrir þessum
starfsmönnum á frönsku að á Is-
landi væri þetta tiltölulega al-
gengur klæðnaður í sundlaug-
um, en svona voru sem sagt regl-
urnar og ég fékk ekki að vera
lengur. Stelpunum fannst þetta
auðvitað bráðfyndið, en per-
sónulega fannst mér þetta nú
hálf bjánalegt allt saman.
Við upphaf 6. umferðar var
sjálfur 12. heimsmeistarinn
mættur á svæðið og mælti nokk-
ur orð til keppendanna. Þeir
eldri voru margir hverjir með
stjörnur í augunum yfir að fá
goðsögnina í heimsókn, en þeir
yngstu kipptu sér lítið upp og
virtust ekki alveg þekkja mann-
inn.
Af skákum umferðarinnar er svo
það það frétta að Jóhanna vann
| sinn fyrsta sigur á heimsmeist-
aramóti, og var þar að auki fyrst
stúlknanna okkar til að vinna á
þessu móti. Vel gert hjá henni.
Fleiri stóðu sig einnig vel, Dagur
| vann víetnamskan Ungverja
j með 2207 stig og Sverrir sigraði
I einnig. Hallgerður gerði sitt
fjórða jafntefli og hefur ásamt
j Degi tapað fæstum skákum af
íslendingunum. Hjörvar gerði
jafntefli við 1934ra stiga Eng-
j lending, en aðrir töpuðu. Sam-
j tals fengum við því fjóra vinn-
j inga, sem er það mesta síðan í 2.
j umferð þegar við fengum einnig
: fjóra.
Dagur 7, sunnudagur 24. jálí
I dag var frídagur á heimsmeist-
aramótinu. Mótshaldararnir
' höfðu skipulagt skoðunarferðir
fyrir gesti sína og var hægt að
j velja milli fjögurra rútuferða til
j bæja sem voru allir í rúmlega
klukkutíma fjarlægð frá Belfort.
j Vegna slæmrar reynslu af skipu-
lagninu og rútum hérna ákváðu
flestir íslendingarnir að afþakka
ferðirnar og fóru í eigin skoðun-
arferð um Belfort. Þótti það
býsna vel heppnuð ferð þar sem
kastalinn og ljónið sem meitlað
er út úr berginu, var barið aug-
um.
Þrír íslendingar gerðust þó svo
djarfir að fara í eina rútuferðina:
Omar, Daði og undirritaður.
j Ferðin sem varð fyrir valinu var
til smábæjarins Riquewihr í Al-
sace-héraði, um 70 rútumínút-
um norðan við Belfort (sem er í
Franche-Comté-héraði/fylki).
Aðal “attraksjónið” er að elsti ;
bæjarhlutinn, sem geymir fjölda
húsa/bygginga frá miðöldum,
hefur varðveist lygilega vel þrátt
fyrir öll stríðin sem Frakkland
hefur séð í gegnum aldirnar.
Mér fannst þetta mjög sjarmer-
andi staður, það er eins og lítil
rödd hvísli að manni: “hei, tíma-
vélin virkar!” Annars var nokkuð
augijóst að bærinn lifir (á sumr-
in allavega) á tvennu: túristum
og víni (og hvað þá fullum
túristum!). Eftir allri aðalgöt-
unni og hliðargötum voru ann-
aðhvort minjagripabúðir, vín-
kjallarar (þar sem yfirleitt var
boðið upp á bæði vínsmökkun
og vínflöskur til sölu) eða veit-
ingastaðir og krár. Svo voru tvö-
þrjú söfn. Ailt var þetta opið þó
sunnudagur væri, og þótt alls
staðar hafi verðið verið býsna
hátt þá ntæli ég samt eindregið
með ferð til Riquewihr, sérstak-
lega unnendum gamla tímans.
Dagur 8, mánudagur 25. júlí
Tvær umferðir voru tefldar í
dag, sú 7. ld. 9:30 og sú 8. kl.
15:30. Uppskeran í 7. umferð
var því miður frekar rýr: einn
sigur, þrjú jafntefli, en fjögur
töp. Sverrir stóð sig mjög vel og
vann góðan sigur á Svisslendingi
með 2064 Elo-stig. Atli, Hall-
gerður og Hjörvar gerðu öll
jafntefli, en aðrir töpuðu.
8. umferðin gekk aðeins betur
því nú urðu sigrarnir tveir, jafn-
teflin tvö, en töpin aftur fjögur,
og því þrír vinningar, hálfum v.
meira en í morgun. Þetta er sem
sagt allt á uppleið. Daði gerði
vel, því hann sigraði Nýsjálend-
ing með 1920 stig. Dagur sigr-
aði stigalausan Kínverja, en mér
136
S K A K