Kjarnar - 01.10.1953, Page 12

Kjarnar - 01.10.1953, Page 12
veikur. Svitinn rann ofan and- lit hans og hálf blindaSi hann, og loftið í flugklefanum var sem í bakaraofni. — Þrátt fyrir hetjulega baráttu Joy við að halda opnum augunum, féll hann fram á stýrið, algjörlega máttvana, en flugvélin steypt- ist með ógnar hraða til jarðar! í líkkistunni. Þegar Jocý kom til sjálfrar sín aftur, barst að eyrum henn- ar sálmasöngur. í fyrstu áttaði hún sig ekki á frá hverju hann gæti stafað, en er hún heyrði útfarar ræðu prestsins, mundi hún það, sem gerst hafði. Ægi- legur ótti greip hana, en er hún ætlaði að æpa af öllum lífs og sálar kröftum, uppgötvaði hún, sér til enn meiri skelfingar, að hún gat engu hljóði upp komið, og ekki hrært svo mikið sem litla fingur! Það var hryllileg og ólýsandi stund, meðan hún hlustaði á húskveðjuna. En þegar hún fann að kistunni var lyft til þess að flytja hana til kirkju- garðsins, þar sem hún skyldi grafin lifandi, féll hún í ómeg- in, yfirbuguð af ótta! Jocý fannst hún vera komin langt aftur í tímann. Hún lá handan við stóra gilið er varn- aði þeim Joy að talast við án þess að hrópa allt, sem þau vildu segja. Þau lágu milli mjúkra þúfnakollanna í sólskin- inu, sitt hvorumegin gilsins og einbeittu huganum hvort að öðru. Kvikfénaðurinn, sem Joy átti að gæta nartaði í safaríkt grasið í kring. — Faðir hennar var efnaðasti bóndinn í sveit- inni, en faðir Joy var fátækur leigubóndi, og þessvegng máttu þau ekki vera saman. — En þau Joy skeyttu því ekkert, en til þess að komast yfir gilið stóra, þurfti að fara margra kílómetra leið, en það þorði hún ekki af ótta við að faðir sinn kæmist að því. — Joy hafði eitt sinn komið með bókina, sem fjallaði um hugskeyti, dáleiðslu, hugs- anaflutning o. fl. Með þolin- mæði barnsins reyndu þau aft- ur og aftur og einn góðan veð- urdag var bilið yfir gjána brú- að. Eftir því sem þau reyndu oftar, gekk þeim betur að kom- ast í sálrænt samband hvort við annað. — En Adam var ekki lengi í Paradís, og þegar for- eldrar hennar dóu flutti hún til frænda síns, er bjó skammt frá London. — Hún var ein- birni og arfleiddi faðir hennar hana að öllum eigum sínum, en þó með þeim skilyi'ðum, að hún yrði gift innan tvítugs aldur. Að öðrum kosti áttu mestar eigur hans að renna til frænda 10 KJARNAR — Nr. 30

x

Kjarnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.