Kjarnar - 01.10.1953, Page 46

Kjarnar - 01.10.1953, Page 46
hann tæki það ekki alvarlega, sem hún sagði. „Þú ert ómögulegur“, sagði hún óánægð. Bill Reed, eigandi og skip- stjóri „Sumarblæsins“, svaraði ekki. Hann horfði á Helen að- dáunaraugum. Hún var einka- dóttir sir John Hubbington. Þau voru stödd á hinu tilkomumikla sveitasetri föður hennar, þegar þetta samtal fór fram. Helen fór snúðug út úr setustofunni, er Bill og hún höfðu verið í. Astæðan til þess, að Helen vildi ekki að Bill sigldi burt á skipi sínu fyrr en eftir tvo daga var sú, að „Northstar", nýjasta og stærsta skip í flota sir Johns átti morguninn eftir að leggja af stað í „jómfrúarför“ sína. Þess vegna var haldið dálítið gildi og þeim, sem boðið var í það, var einnig boðið að sigla með skipinu til London. En þangað ætlaði sir John að stjórna því. Er til London kæmi átti skipstjórinn að koma um borð og taka við skipinu og bera ábyrgð á því. Það var glatt á hjalla í gild- inu og gestirnir hlökkuðu til þess, að fara með hinu glæsi- lega skipi til London. Einungis einn gestanna neitaði ákveðið að fara með skipinu til London. Það var Bill Reed, sem þó var mesti vinur Helenar, og hefði getað notið návistar hennar á ferðinni. Bill Reed var duglegur og framkvæmdasamur. Hann hafði sterka þrá til þess að verða sjálfstæður maður efnalega, og í hvívetna. Eftir stríðið fór hann úr flotaþjónustunni, sæmdur heiðursmerki fyrir hraustlega framgöngu og fékk dálítil „eftirlaun" í viðurkenn- ingarskyni. En hann þráði að vera á sjón- um. Hann átti dálitla peninga- upphæð, og fékk auk þess nokk- urt peningalán. Þá keypti hann aflóga tankskip, er haft hafði verið til flutninga. Þennan kláf skírði hann í háði „Sumar- blærinn“. Honum hafði heppnast að fá skipshöfn á Sumarblæinn. Flest- ir þeirra, sem ráðnir voru á skipið voru stríðsfélagar Bills, og meira og minna bilaðir menn. En þeir vildu heldur vera á sjónum en dansa eftir verksmiðjuflautu í landi. Bill Reed lét skip sitt vera í förum milli Tyne og Themsen. Hann flutti hvaða varning sem vera skyldi — tilbúinn áburð (dritlíki) eigi síður en annað. Fram til þessa hafði allt gengið prýðilega. Bill var ekki í vafa um, að hann yrði vel stæður er tímar liðu. „Hubby“ gamli hafði unnið sig upp með 44 KJARNAR — Nr. 30

x

Kjarnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.