Kjarnar - 01.10.1953, Page 23
mundi þér aldrei hafa getað til
hugar komið“.
Fyrir 16 árum hélt Kamma
innreið sína í þennan bæ. Þá
var hún tuttugu og tveggja ára
gömul. Þrekmikil, dugleg og
fríð var hún þá, en barnaleg.
Hún var dóttir smábónda, og
var þriðja elzta barn hans.
Kresten hafði misst konu sína
fyrir skömmu. Kona hans dó af
barnsförum. Barnið dó einnig.
Kamma vann eins og þræll.
Henni þótti Kresten mjög mik-
ið glæsimenni. Hún leit upp til
hans eins og guðs. Hann var þá
kominn yfir þrítugt. Er hann
fór að líta Kömmu girndaraug-
um, þótti henni vænt um. Hún
var ekki veraldarvön, og bjóst
við að verða húsfreyja á Vest-
ergárd. Henni kom ekki til hug-
ar, að ekki væri um alvöru að
ræða frá hans hendi.
Hún veitti honum það, sem
hann fór fram á, í hvert sinn,
er hann krafðist þess að koma
inn í herbergið til hennar. Og
þetta lét hún í té af heilum
huga og í góðri trú um heilindi
hans. En tíminn leið og Krest-
en minntist ekki einu orði á
hjúskap.
Smám saman barzt þessi frétt
út um allt, að Kresten skemmti
sér við vinnukonuna. Þegar
Kamma kom heim, grét móðir
hennar og ákallaði allar góðar
vættir. Hverju sætti þetta? Var
dóttir hennar ekki siðprúð
stúlka?
„Kresten þykir vænt um
mig“, sagði Kamma. „Við gift-
umst einn góðan veðurdag“.
„Giftist11, sagði móðir hennar,
vantrúuð.
„Hvar er trúlofunarhringur-
inn? Hversvegna kemur Krest-
en ekki hingað?“
Kamma grét oft. Á morgun
tala ég við hann, hugsaði hún
áður en hún sofnaði. Hann hlýt-
ur að skilja það, að þannig get-
ur þetta ekki gengið til lengdar.
En tímar liðu og hún þagði.
Kresten kom inn til hennar eft-
ir þörfum, hár, gildvaxinn, skip-
andi, og glæsilegur. Hún sagði
ekkert. Hún hafði ekki kjark
til þess. Hvernig færi, ef hann
segði, að hún mætti fara? Hún
vann afskaplega mikið. Stof-
urnar voru skínandi vel hirtar,
maturinn ágætur, garðinn hirti
hún. Það voru engin takmörk
fyrir dugnaði hennar. Hún
hugsaði: Þegar hann sér, hve
dugleg ég er, ákveður hann sig.
Honum hlýtur að vera það ljóst,
að ég er eigandi.
Þetta voru erfið ár. Kamma
þrælaði óheyrilega mikið á
daginn, og varð fyrir harð-
hendum ástaratlotum á kvöld-
in. Kresten var gráðugur í
kvenlega blíðu. Hún grét um
KJARNAR — Nr. 30
21